Vigdís Jakobsdóttir, leiklistarfræðingur og leikstjóri, er deildarstjóri hinnar nýju fræðsludeildar Þjóðleikhússins sem fékk tveggja ára styrk frá Menningarsjóði Íslandsbanka þegar hún var stofnuð í mars s.l. Hugmyndin að fræðsludeildinni er frá Vigdísi komin og kviknaði fyrir rúmum þremur árum. "Ég var þá að vinna sem aðstoðarleikstjóri í leikritinu Bróðir minn ljónshjarta og þar sem tveir mánuðir liðu frá frumsýningu þess og að næsta verkefni hjá mér, bauðst mér að fylgja verkinu eftir inn í skólana í samstarfi við kynningardeild leikhússins. Ég útbjó þá fræðslupakka fyrir kennara með hugmyndum að alls kyns æfingum tengdum verkinu. Auk þess vorum meðal annars með dagskrá í Norræna húsinu og buðum þangað skólum. Það fylltist allt þessi þrjú eða fjögur skipti sem dagskráin var haldin og við önnuðum engan veginn eftirspurn. Ég sá hve gífurleg þörf er fyrir starf af þessum toga, og byrjaði að þróa þær hugmyndir sem nú eru orðnar að veruleika," segir Vigdís. Námskeið fyrir áhugasama "Hlutverk fræðsludeildarinnar er m.a. að vekja athygli kennara á margþættu notagildi leiklistar í kennslu. Henni er ætlað að hafa frumkvæði að samskiptum við skóla og styðja kennara bæði í því að nota leiklist sem þverfaglegt kennslutæki og í leiklistarkennslu. Skólabörn hafa í áratugi komið inn í leikhúsið í kynnisferðir og starfskynningar en það sem við erum að gera núna er viðbót við þetta hefðbundna starf. Við hyggjumst m.a. halda regluleg námskeið og fyrirlestra fyrir áhugasama kennara. Þá verður sýningum leikhússins fylgt eftir með ítarefni og hugmyndum sem hægt er að vinna með í skólastofunni, með aðferðum leiklistarinnar. Ég er að vinna í því þessa dagana að fá kennara frá fræðsludeild breska Þjóðleikhússins til að halda fyrsta námskeiðið hjá okkur í haust, sem yrði n.k. grunnnámskeið í leiklistarkennslu. Á þessu sviði eru Bretar í fararbroddi, og því mjög eftirsóknarvert að læra af þeirra reynslu. Í framtíðinni, þegar við eigum orðið fleiri sérmenntaða leiklistarkennara, verða námskeiðin okkar væntanlega sérhæfðari." Vigdís vinnur að því að móta stefnuna enn frekar, auk þess sem hún er að móta sjálfstæða heimasíðu fyrir fræðsludeild, sem ætluð er öllu áhugafólki um leikhús, enda er hlutverk fræðsludeildar ekki einungis að sinna skólasamstarfi heldur öllum almenningi. "Heimasíðuna, sem opnuð verður í haust, sé ég fyrir mér sem nokkurs konar aðalinngang að fræðsludeildinni. Þar verður í fyrsta lagi hægt að nálgast ágrip af sögu Þjóðleikhússins, fræðsluefni um það starf sem fer fram í leikhúsi, hvort sem það heitir förðun, leikstjórn eða annað. Þar verður líka hægt að nálgast ítarefni um sýningar, og kennarar geta nálgast verkefnapakka með hugmyndum að því hvernig vinna mætti með ákveðin verk sem eru á fjölunum. Auk þess verður þarna veglegt tenglasafn og alls kyns skemmtun og fróðleikur um leikhús." Loks er Vigdís að vinna könnun sem lögð verður fyrir kennara og skólastjórnendur í grunnskólum, um hvernig leiklist er notuð í skólum. Könnunin er þrískipt, í fyrsta lagi tölfræðihlutinn, sem framkvæmdur er með handauppréttingu á kennarafundi, þar sem fram kemur hve margir kennarar nýta sér leiklist í kennslu, í öðru lagi símaviðtöl við stjórnendur um stefnu skólans hvað varðar leiklist og leikhúsferðir og loks ítarlegri viðtöl við áhugasama kennara sem hafa unnið með leiklist og þá um hvernig þeir nota hana. María Pálsdóttir leikkona, sem er að ljúka kennaranámi í KHÍ, vinnur könnunina með Vigdísi og mun nota hana sem uppistöðu í B.Ed. ritgerð sína nú í vor. Leiklistin er altækt kennsluform "Leiklist þroskar með okkur tjáningarhæfni í víðustum skilningi þess orðs. Í leiklist er verkfærið við sjálf, tungumálið, líkaminn og tilfinningar okkar. Ég trúi því að leiklist sé bókstaflega mannbætandi, því hún krefst þess af okkur að við setjum okkur í spor annarra og lítum á heiminn út frá nýju sjónarhorni" segir Vigdís. "Fyrst og fremst er leiklist þó sjálfstæð listgrein, sem á fullan rétt á að vera sinnt í skólakerfinu rétt eins og tónlist og myndlist. Með því að kenna leiklist, eflum við læsi nemenda á listformið, aukum sjálfstraust þeirra, færni þeirra til að mynda sér sjálfstæðar skoðanir, og getuna til að koma þeim frá sér á skiljanlegan hátt. Er það ekki fínt veganesti að gefa börnunum okkar út í lífið?" Fræðsludeild Þjóðleikhússins er ætlað: · Að vera til þjónustu við kennara á öllum skólastigum sem vilja nota leiklist og leikræna tjáningu með nemendum sínum. Þetta verður gert m.a. með námskeiðum, fyrirlestrum og útgáfu (á netinu) á kennsluefni tengdu sýningum Þjóðleikhússins. · Að hvetja til umræðu um leiklist í skólum, bæði innan skólanna og utan þeirra. · Að færa Þjóðleikhúsið nær almenningi í landinu, m.a. með því að gera innra starf leikhússins sýnilegra og fræðslu um leikhúsið aðgengilega. · Póstlisti fræðsludeildar Þjóðleikhússins er fyrir alla áhugasama kennara. Þar verða reglulega færðar fréttir af starfi deildarinnar, námskeið og fyrirlestrar verða kynnt með góðum fyrirvara og ýmis tilboð fyrir kennara. Skráðu þig með því að senda póst á fraedsla@leikhusid.is
|