Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Um fræðsludeildina > Markmið og leiðir við stofnun fræðsludeildar
Markmið og leiðir við stofnun fræðsludeildar

Með stofnun fræðsludeildar slæst Þjóðleikhúsið í hóp þeirra fjölda leikhúsa í Evrópu sem vilja leggja sérstaka rækt við listuppeldi ungs fólks og listfræðslu almennings. Fræðslustarf er víða orðinn mikilvægur þáttur í starfi leikhúsa, bæði í tengslum við kynningu á einstökum leiksýningum og starfsemi leikhúsanna almennt, og sem liður í notkun leiklistar sem kennslutækis í skólum.

 

Leiklist hefur mannbætandi áhrif á þá sem hana stunda. Hún eflir félagsþroska, málþroska og rökræðuhæfni, samskiptahæfileika, frumkvæði og sjálfstraust. En þó til sé námsskrá í leikrænni tjáningu fyrir grunnskóla á Íslandi, og þó leiklistar sé getið í námsskrá fyrir þó nokkrar greinar á framhalsskólastigi, er lítið sem ekkert námsefni til fyrir þá kennara sem vilja gefa sig að leiklist. Fræðsludeild Þjóðleikhússins er ætlað að koma til móts við þessa þörf að einhverju leyti, bæði með eftirfylgni við þær sýningar sem eru á fjölunum hverju sinni og með því að miðla þekkingu á greininni og aðferðum hennar til kennara.

 

Markmið:

  • Að efla tengsl Þjóðleikhússins við skólana í landinu (leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla).
  • Að hafa frumkvæði að umræðu um leiklist í skólum.
  • Að gera leikhúsið sýnilegra í samfélaginu og færa það nær almenningi.
  • Að breikka áhorfendahóp Þjóðleikhússins og örva þann sem fyrir er.

Leiðir:

  • Gera ítarlega könnun á stöðu leiklistarkennslu og leiklistarstarfs í íslensku skólakerfi í dag, og safna saman þeirri þekkingu sem er fyrir hendi. E.t.v. koma á umræðugrundvelli/samstarfsvettvangi við skólana.
  • Að fylgja sýningum leikhússins eftir með kennsluefni og æfingum sem kennarar mismunandi skólastiga hefðu greiðan aðgang að.
  • Að halda regluleg námskeið fyrir kennara og leiðbeinendur og veita þeim greiðan aðgang að upplýsingum, námsefni og listamönnum leikhússins.
  • Að setja upp heimasíðu, tengda heimasíðu Þjóðleikhússins, þar sem slíkt kennsluefni ásamt gagnlegum upplýsingum um Þjóðleikhúsið og leiklist almennt væri að finna.
  • Að búa til handhægt fræðsluefni um Þjóðleikhúsið sem yrði m.a. hægt að nota þegar tekið er á móti skólahópum í heimsóknir baksviðs og nemendum í starfskynningu. Í þessu fræðsluefni yrði m.a. rakin saga leikhússins, fjallað um uppbyggingu starfseminnar og innra starf leikhússins.
  • Að stofna til tengsla við fræðsludeildir leikhúsa erlendis í því augnamiði að læra af reynslu þeirra og nýta þá þekkingu til að byggja upp starfið hér.

Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is

 



Hefur þú komið á þessa síðu áður?

Já, mjög oft.
Já, nokkuð oft.
Já, nokkrum sinnum.
Já, örsjaldan
Nei, aldrei.