Fræðsludeild Þjóðleikhússins - opnar dyr leikhússins fyrir þér!
Helstu markmið fræðsludeildar eru:
-
Að gera leikhúsið aðgengilegt sem flestum – Þjóðleikhúsið fyrir alla!
-
Að efla leiklistarlæsi og leiklistaráhuga almennings og þá einkum ungs fólks.
-
Að veita kennurum sem vilja nota leiklist í skólastofunni stuðning, m.a. með námskeiðahaldi, vinnusmiðjum, útgáfu fræðsluefnis og persónulegri ráðgjöf.
Meðal verkefna fræðsludeildar í upphafi leikárs:
Kynning á Sitji Guðs englar fyrir heyrnarlausa
Í samstarfi við Félag heyrnarlausra býður fræðsludeildin upp á ókeypis táknmálstúlkaða forkynningu og heimsókn baksviðs fyrir heyrnarlausa/heyrnarskerta leikhúsgesti á sýningunni Sitji Guðs englar eftir Guðrúnu Helgadóttur.
Skoppa og Skrítla – leiksýning fyrir 9 mánaða og eldri!
Í byrjun október verður þessi skemmtilega litla smábarnasýning frumsýnd á Leikhúsloftinu. Fræðsludeildin fylgir sýningunni eftir m.a. með leiklistarnámskeiðum fyrir leikskólakennara. Leikkonur sýningarinnar; Linda Ásgeirsdóttir og Hrefna Hallgrímsdóttir leiðbeina.
,,Stórfenglegt” námskeið á einfaldri íslensku
Fræðsludeildin býður nú í fyrsta sinn upp á námskeið fyrir fólk með takmarkaða íslenskukunnáttu. Hugmyndin að baki námskeiðinu er að veita þátttakendum örlitla innsýn í íslenskan leikhúsheim, og kynna ákveðið verk fyrir þeim. Þátttakendur fá að koma í heimsókn í leikhúsið baksviðs, hitta íslenskt leikhúslistafólk og fá útdrátt og útskýringar á söguþræði leiksýningarinnar Stórfengleg! áður en þeir fara í leikhúsið. Námskeiðið er haldið í samstarfi við fræðsludeild Alþjóðahúss
Patrekur 1,5 – farandsýning í framhaldsskóla
Þjóðleikhúsið leggur land undir fót í haust, og fer í leikferð með þessa hressilegu farandsýningu í framhaldsskóla. Fræðsludeildin hefur umsjón með sýningunni, og fylgir henni eftir m.a. með útgáfu fræðslupakka sem verður lífsleikni-miðaður.
Reglulegt starf fræðsludeildar:
Vinnusmiðjur kennara
Mánaðarlegar vinnusmiðjur fyrir leiklistarkennara í allan vetur - í samstarfi við FLÍSS – Félag um leiklist í skólastarfi
Fræðslupakkar
Fræðslupakkar fylgja völdum sýningum í vetur. Þeir eru hugsaðir sem stuðningur fyrir kennara sem vilja undirbúa leikhúsferð og fylgja henni eftir í skólastofunni. Hver pakki inniheldur upplýsingar og ítarefni um sýninguna, ásamt spennandi kennsluhugmyndum. Fræðslupakkarnir verða allir aðgengilegir ókeypis á vefsvæði fræðsludeildar.
Skólaheimsóknir / starfskynningar
Þjóðleikhúsið hefur um árabil tekið á móti skólahópum í heimsóknir baksviðs. Síðastliðinn vetur fengu um 800 börn kynnisferð um leikhúsið. Þessar heimsóknir eru í umsjón fræðsludeildar, og verður þjónusta við skólahópa styrkt enn frekar í vetur.10. bekkingum býðst auk þess að koma í leikhúsið á sérstaka starfskynningardaga, þar sem þeim gefst m.a. tækifæri til þess að kynna sér starf hinna mismunandi deilda hússins, hitta leikhúslistafólk og taka þátt í leiksmiðju.
|