Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Um fræðsludeildina > Fræðsludeild
Fræðsludeild

Verkefni fræðsludeildar Þjóðleikhússins leikárið 2002/2003:

 

Námskeiðahald

Didi Hopkins, leiklistarkennari frá breska þjóðleikhúsinu kom tvisvar, fyrst í september og svo í maí, til þess að halda samanlagt fjögur námskeið. Þrjú námskeið fyrir kennara og eitt fyrir leikhúslistafólk. Mjög vel var af námskeiðunum látið, og margir kennarar komu oftar en einu sinni til hennar.

Leikritunarnámskeið fyrir kennara var haldið í janúar samvinnu við leiklistardeild LHÍ í tengslum við örleikritasamkeppni fyrir framhaldsskólanema. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Karl Ágúst Úlfsson.

 

Könnun um leiklist í skólum

María Pálsdóttir leikkona vann í samstarfi við okkur könnun um leiklist í reykvískum grunnskólum. Könnunina notaði María sem hluta af lokaverkefni sínu við KHÍ: Leiklist í grunnskólum. Þessi könnun hefur reynst dýrmætt tæki til þess að meta þarfir skólanna hvað varðar námskeið og annað starf.

 

Póstlisti og tenglanet

Lögð var mikil áhersla á það síðasta vetur, að byggja upp sterkt net kennara sem eru áhugasamir um leiklist í skólum. Kjarnahópurinn samanstendur í dag af um 70 einstaklingum sem nánast allir eru starfandi kennarar, og flestir kenna leiklist. Hópurinn er á netfangalista sem fær upplýsingar um starf fræðsludeildarinnar, tilboð í leikhús og ábendingar um netslóðir og leiklistaræfingar.

 

Opinn fundur um leiklist í skólum

Í mars stóð fræðsludeildin fyrir opnum fundi um leiklist í skólum. Frummælendur voru Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra, Gerður G. Óskarsdóttir fræðslustjóri Reykjavíkur, Ragnheiður Skúladóttir deildarforseti leiklistardeildar LHÍ, Anna Flosadóttir myndlistar- og leiklistarkennari í Hlíðaskóla, Guðlaug María Bjarnadóttir leiklistarkennari í Borgarholtsskóla og Sigrún Sól Ólafsdóttir leikkona og leiklistarkennaranemi.

 

Fræðslupakki

Gefinn var út 17 bls. fræðslupakki um Jón Odd og Jón Bjarna með æfingum og ábendingum um leiklistarkennslu, ítarefni og umræðupunktum.

 

Starfskynningar

Í samstarfi við kynningardeild. Starfskynningar 10. bekkinga voru endurskipulagðar, og mun fleiri börn sóttu starfskynningar í Þjóðleikhúsið síðasta vetur fyrir vikið, en venjulega. Skipulagðir voru starfskynningadagar þar sem nemendurnir fengu ítarlega kynningu á starfsemi hússins, fengu tækifæri til að hitta og spyrja leikara spurninga og 1-2 tíma leiksmiðju.

 

Örleikritasamkeppni

Með það að markmiði að efla áhuga íslenskra framhaldsskólanema á því að skrifa fyrir leikhús, efndu fræðsludeildin í samstarfi við leiklistardeild LHÍ til örleikritasamkeppninnar Tveir stólar. Þátttaka fór fram úr björtustu vonum, og gæði innsendra verka komu dómnefnd mjög á óvart. Dómnefndina skipuðu Ragnheiður Skúladóttir deildarforseti leiklistardeildar LHÍ, Vigdís Jakobsdóttir deildarstjóri fræðsludeildar Þjóðleikhússins og Magnús Þór Þorbergsson dramatúrgur.

Dagskrá fræðsludeildar 2006/2007


Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is