Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Um fræðsludeildina
Um fræðsludeildina

Við fræðsludeild Þjóðleikhússins eru tveir starfsmenn í fullri stöðu: Þórhallur Sigurðsson leikari og leikstjóri og Vigdís Jakobsdóttir leikstjóri og leiklistarfræðingur.


Bjargföst trú á uppeldislegt og menningarlegt gildi leiklistar býr að baki starfi fræðsludeildarinnar, sem  stofnuð var með stuðningi frá menningarjóði Íslandsbanka í byrjun mars 2002. Starf deildarinnar miðar að því að víkka út starfsemi leikhússins og opna dyr þess fyrir breiðari áhorfendahóp en en þeim sem fyrir er. Áhersla er lögð á samstarf við kennara og skólastofnanir, móttöku hópa í leikhúsið, útgáfu námsefnis og ítarefnis tengt sýningum, námskeiðahaldi og uppsetningar á leiksýningum sem sérstaklega eru ætlaðar ungu fólki.


Á haustdögum 2005 fékk fræðsludeild Þjóðleikhússins nýtt húsnæði í gamla Hæstaréttarhúsinu að Lindargötu 3. Í húsinu er skrifstofa deildarinnar auk dómsalarins á 2. hæð, sem nýttur er sem æfingasalur fyrir leikhúsið.

  

Sjá nánar í eftirtöldum greinum:

 

Markmið og leiðir við stofnun fræðsludeildar, mars 2002

 

Viðtal við Vigdísi Jakobsdóttur, deildarstjóra fræðsludeildar, í Skólavörðunni. Vor 2002

 

Grein eftir Vigdísi Jakobsdóttur í Skímu, málgagni móðurmálskennara, janúar 2003

Verkefni fræðsludeildar 2006-2007


Verkefni fræðsludeildar 2006-2007