Nokkrir æfingasalir eru í Þjóðleikhúsinu. Í fyrsta lagi er salur í aðalbyggingunni sem í daglegu tali er kallaður ballettsalur. Ástæðan fyrir því er að fram til ársins 1990 hafði Listdansskóli Þjóðleikhússins og síðar Íslenski dansflokkurinn þar æfingaaðstöðu. Frá þeim tíma eru enn rauðar dans-slár og stórir speglar á veggjum í salnum.
Verið er að breyta æfingasalnum í húsi Jóns Þorsteinssonar við Lindargötu 7, þar sem Litla sviðið er í kjallaranum. Salurinn er gamall íþróttasalur, og breidd hans er svipuð og breidd Stóra sviðsins. Verður æfingasalurinn að Kassanum, nýju sviði sem taka mun tæplega 200 manns í sæti. Æfingaslurinn verður færður í kjallarann þar sem Litla sviðið var áður.
Leikhúsloftið varð til þegar áhorfenda salnum var breytt árið 1991, efri svalirnar voru teknar burt. Salurinn er frekar lítill og gluggalaus, en notalegur og friðsæll. Hægt er að ganga inn á leikhúsloftið af þaki leikhússins.
Ef þörf krefur fara æfingar einnig fram í anddyri Smíðaverkstæðis, á Kristalssal, í Leikhúskjallara og í Dómsalnum Lindargötu 3.
|