Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Þjóðleikhúsið þá og nú > Leiksviðin
Leiksviðin

Stóra svið

Stóra svið Þjóðleikhússins er eina leiksviðið sem gert var ráð fyrir í upprunalegum teikningum leikhússins. Minni sviðin hafa bæst við vegna aukinnar kröfu leikhússins sjálfs, leikhúslistafólks og áhorfenda, um fleiri og fjölbreyttari leikrými. Stóra sviðið er samt sem áður aðalsvið leikhússins. Það er auk þess að vera langstærst, það svið Þjóðleikhússins sem býður upp á mestu möguleika tæknilega séð.

 

Það má þakka framsýni frumkvöðlanna sem stóðu að byggingu Þjóðleikhússins á sínum tíma, hversu vel leiksviðið hefur staðist tímans tönn.

 

Stóra sviðið er klassískt kassasvið. Það hefur frá upphafi verið búið hringsviði og flugkerfi. Það er varla hægt að ímynda sér í dag hversu mikil bylting í aðstöðu til leiksýningahalds varð við opnun Þjóðleikhússins árið 1950. Öll aðkoma að húsinu og yfirbragð í framhúsi (sá hluti hússins sem áhorfendur ganga um áður en gengið er í salinn sjálfan) var auk þess mun glæsilegra en Íslendingar höfðu áður kynnst. 

 

Árið 1990 var stóra sviðinu lokað vegna gagngerra endurbóta og breytinga á salnum sjálfum, og ekki opnað aftur fyrr en ári síðar, í mars 1991. Nánast engar breytingar voru þó gerðar á sviðinu sjálfu, nema hvað sviðsopið var stækkað um meter eða svo á hvorn veg. Breytingarnar fólust fyrst og fremst í því að efri svalir voru teknar burt, neðri svalirnar stækkaðar, og sætum þar með fækkað nokkuð. Að öðru leyti var um nauðsynlegar endurbætur að ræða, s.s. bætta aðstöðu fyrir fatlaða leikhúsgesti o.fl.

 

Sviðið sjálft

Leikmunaverðir, leikstjóri og leikmyndahöfundur skipuleggja skiptingar á stóra sviðinu.

 

 

Stærð leiksviða er mjög mismunandi. Stóra svið Þjóðleikhússins myndi þó sennilega flokkast sem meðalstórt í alþjóðlegu tilliti. Sviðsopið (ramminn sem snýr að áhorfendum) er 10,7 metrar á breidd og 7,5 metrar á hæð. Dýpt sviðsins frá teppi (fortjaldi) er 15 metrar. Hæðin upp í rjáfur á turninum er heilir 19 metrar, en turninn hýsir flugkerfið. (Sjá nánar hér að neðan)

 

Hringsviðið

Hringsviðið er hringlaga flötur á leiksviðinu; 13,5 m í þvermál, sem mögulegt er að snúa með vélbúnaði. Hringsviðið er ekki notað í hverri sýningu, en oft er þörf á því. Oftast er það notað til þess að skipta um sviðsmynd, en stundum er það líka notað til áhrifa. Til dæmis eru leikarar stundum látnir ganga á móti snúning til þess að tákna ferðalag.

 

Járnvirkið í hringsviðinu er mikið, en efnið í það var á sínum tíma fengið úr gömlu Ölfusárbrúnni, sem verið var að endurnýja um svipað leyti og leikhúsið var að rísa. Það hefur staðist tímans tönn vel, og mun sennilega bera uppi leiklistina í Þjóðleikhúsinu um ókomna tíð.

 

Flugkerfið

Uppi í turni leikhússins, sem er beint fyrir ofan leiksviðið, eru 42 rár þvert yfir sviðið með reglulegu millibili, sem hægt er að láta síga upp og niður eftir þörfum. Þetta er kallað flugkerfi, og almennt er talað um að fljúga hlutum inn og útaf sviðinu þegar sviðsmynd, leikmunir eða jafnvel leikarar eru látnir svífa upp eða niður úr loftinu í leiksýningu.

 

Flugkerfið er í raun kaðlakerfi, með lóðakössum. Lóð eru látin vega upp á móti þyngdinni á því sem á að láta fljúga, og sviðsmenn sjá um að toga í kaðlana eftir þörfum. Fyllsta öryggis er gætt við notkun flugkerfisins, og hugað að hverju smáatriði, enda getur jafnvel lítill hlutur náð miklum og lífshættulegum fallþunga úr allt að 19 metra hæð!  Þumalputtareglan er að hver rá beri um 150 kíló, og það þurfa leikmyndahöfundar til dæmis að hafa í huga þegar þeir hanna leikmyndir sínar.

 

Flugkerfið er mikið notað, oftast í leikmyndaskipti, enda mjög þægileg og snyrtileg leið til þess að losna við eða bæta inn leikmynd á sviðið.  Fjórar af ránum í flugkerfinu eru alltaf notaðar undir ljósabúnað.

 

Lyftubúnaður

Oft kemur það fyrir að leikstjóri og leikmyndahöfundur vilja að leikari eða hluti af leikmynd birtist uppúr gólfinu á leiksviðinu. Hægt er að opna leiksviðið niður á svokallað millidekk, og láta hluti koma þaðan upp. Hringsviðið er samansett úr flekum eftir ákveðnu kerfi, sem hægt er að taka úr eftir þörfum og opna niður.

 

Til er færanlegur lyftubúnaður sem var smíðaður sérstaklega fyrir leiksýningu einu sinni, sem ber einn mann. Oft er líka ósköp einfaldlega notaður stigi. Hver leiksýning gerir nýjar kröfur, og þá reynir á útsjónarsemi leiksviðsstjóra í samráði við leikmyndahöfund og leikstjóra í að finna nýjar leiðir til þess að framkvæma hlutina. Lausnirnar eru því oft bundnar við einstakar sýningar, og ómögulegt að segja til um hvers næsta sýning krefst.

 

Salurinn

Fjöldi sæta í stóra salnum er 499. Einar svalir eru í salnum, en fyrir breytingarnar á salnum 1990/91 voru svalirnar tvennar, og sætin í salnum þar af leiðandi fleiri. Efri svalirnar voru mjög hátt uppi, og sjónarhornið á sviðið nokkuð bratt. Eftir breytingarnar eru öll sæti með óskertum sjónlínum.

 

Af þessum 499 sætum eru 45 sæti sem hægt er að fjarlægja fremst úr salnum. Það er gert þegar þörf er á að stækka sviðið (gólfinu er þá lyft upp í sviðshæð) eða þegar þörf er á hljómsveitargryfju (gólfið látið síga niður). Gryfjan eins og þessi hluti sviðsins er kallaður, er í þremur hlutum, og þannig er til dæmis einnig möguleiki á að útbúa litla hljómsveitargryfju (eins og til dæmis er gert í Dýrunum í Hálsaskógi)  án þess að fórna öllum sætunum.

 

Gryfjan var endurbætt á sama tíma og salurinn. Ekki hefur það komið fyrir eftir breytingar að leikarar eða aðrir falli niður í gryfjuna, en það gerðist víst oftar en einu sinni fyrir endurbætur!

 

Forteppi

Stóra rauða flauelistjaldið sem oftast er notað til að draga frá og fyrir sviðinu, er innan leikhússins kallað forteppi. Talað er um að draga teppið frá og fyrir, en ekki tjaldið eins og halda mætti. Bæði er hægt að draga teppið frá með handafli og með rafknúnum búnaði. Teppið er engin smásmíði, og hvor vængur er nokkur hundruð kíló.

 

Járnteppið

Það sem kallað er járnteppið á stóra sviðinu, er alls ekki teppi, heldur risavaxinn járn-fleki, sem hægt er að láta síga niður og loka sviðsopinu. Járnteppið er eldvörn, og eftir að æfingum eða sýningum lýkur á kvöldin er það látið niður.  Stundum er járnteppið látið niður í hléi á sýningum, ef sviðsmyndaskipti eru mikil og hávaðasöm. Það hefur einnig komið fyrir að leikmunahöfundar hafa notað járnteppið sem hluta af sviðsmynd, með því að láta það síga niður að hluta.

 

Geymslurými

Mjög takmarkað geymslurými er fyrir leikmyndir í leikhúsinu sjálfu. Það krefst oft mikillar útsjónarsemi að láta þrjár, og jafnvel fjórar eða fimm leikmyndir komast fyrir í því takmarkaða geymsluplássi sem er til hliðar við sviðið. Þetta neyðist leikmyndahöfundur að taka inn í myndina þegar hann/hún hannar sína leikmynd. Þar hefur hann m.a. leiksviðsstjóra sér til ráðgjafar.

 

Þrennt þarf leikmyndahöfundur að hafa í huga í þessu tilliti: Í fyrsta lagi að leikmynd sé nógu einföld í uppsetningu til þess að hægt sé að sýna t.d. barnasýningu að deginum til og skipta um leikmynd fyrir kvöldið.  Í öðru lagi að leikmyndin rúmist ásamt öðrum leikmyndum sem eru í notkun á sama tíma í því takmarkaða geymslurými sem er til staðar. Og í þriðja og síðasta lagi að leikmyndin sé þannig að ekki þurfi her manns til þess að hreyfa hana til og vinna við hana. Þrír fastir sviðsmenn eru á vakt í einu, og öll auka-útköll kosta auðvitað peninga.

 

Öryggismál

Vel er hugað að öryggismálum á stóra sviðinu. Lofthæð er mikil og oft er verið að forfæra stóra hluti fram og tilbaka bæði á sýningum og á öðrum tímum. Allar leikmyndir eru teknar út af eldvarnareftirliti fyrir frumsýningu og vinnueftirlitið kemur reglulega og tekur út aðstæður.

Yfirumsjón með stóra sviðinu hefur leiksviðsstjóri.




Smíðaverkstæðið


Frá æfingu á leiksýningunni Veislunni á Smíðaverkstæðinu.

 

Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins er eitt af þremur leiksviðum hússins. Það er að finna í kjallara leikhússins ásamt eldhúsi og veitingasal Þjóðleikhúskjallarans.

 

Smíðaverkstæðið var áður, eins og nafnið gefur til kynna, trésmíðaverkstæði þar sem leikmyndir hússins voru smíðaðar. Þær voru að því loknu hífðar upp á 5. hæð í málarasalinn þar sem þær voru málaðar og svo að lokum var þeim slakað niður á aðalsviðið á 2. hæð.

 

Í lok árs 1991 þegar leikmyndasmíðin hafði verið flutt úr húsinu hófust framkvæmdir við nýtt leiksvið Þjóðleikhússins. Löngu var orðið tímabært að Þjóðleikhúsið hefði yfir að ráða öðru leiksviði sem væri minna og óhefðbundnara í sniðum en stóri salurinn. Í smærra rými verður nálægðin við áhorfendur önnur, áherslur í leik og efnistökum eru sömuleiðis ólíkar og oft er mögulegt að stunda áræðna tilraunastarfsemi á minni sviðum; gefa nýjum höfundum og listamönnum tækifæri á að spreyta sig.  

Fyrsta frumsýning á Smíðaverkstæðinu var leikgerð Hávars Sigurjónssonar á verki Vigdísar Grímsdóttur Ég heiti Ísbjörg ég er ljón í janúar 1992. Meðal vinsælla verka sem sýnd hafa verið á leiksviðinu síðan þá eru: Sannar sögur af sálarlífi systra, Stræti, Taktu lagið Lóa, Með fulla vasa af grjóti, og nú síðast Veislan og Karíus og Baktus 

Smíðaverkstæðið tekur frá 110 upp í 160 áhorfendur allt eftir því hvernig sætaskipan er í salnum. Leikrýmið er þeim kostum búið að hægt er að skipa því niður eftir því hvað hentar hverju leikverki fyrir sig. Þannig er hægt að leika eftir salnum þvert og endilangt, með áhorfendur sér til sitt hvorrar handar eða beint; eða á ská og þannig skapa fyrir áhorfandan ætíð nýja nálægð við leikarann. Nálægð þar sem hver hreyfing, hvert svipbrigði fer að skipta máli.

 

Fyrsti leiksviðsstjóri Smíðaverkstæðisins var Gísli Árnason. Núverandi leiksviðsstjóri Smíðaverstæðisins er Ásdís Þórhallsdóttir leikstjóri.

Starf forstöðumanns felur í sér alla almenna umsjón með leiksviðinu ásamt sýningarstjórn.

 

Litla sviðið verður Kassinn

Litla svið Þjóðleikhússins er ekki staðsett í aðalbyggingu leikhússins, heldur bakvið hana, í svokölluðu Jónshúsi (Íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar) að Lindargötu 7. Þar eru einnig til húsa flestar skrifstofur leikhússins og  æfingasalur. 
Um þessar mundir er verið að breyta æfingasalnum á fyrstu hæð hússin í nýtt svið, Kassann, sem mun taka tæplega 200 manns í sæti. Það verður tekið í notkun í febrúar 2006 og leggjast þá niður sýningar á Litla sviðinu í kjallara Jónshúss. 

 

Núverandi forstöðumaður Litla sviðs er Ólafur Haukur Matthíasson.

Starf forstöðumanns Litla sviðsins felur í sér alla almenna umsjón með leiksviðinu ásamt sýningarstjórn.

 

Meira:  Æfingasalir

 

 

Æfingasalir

Þjóðleikhússins


Byggingarsaga

Þjóðleikhússins


Hvað gerir tæknistjóri?