Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Þjóðleikhúsið þá og nú > Frekari heimildir um sögu Þjóðleikhússins
Frekari heimildir um sögu Þjóðleikhússins

Vígsla Þjóðleikhússins , Þjóðleikhúsið, Reykjavík, 1950.

Lítið rit tekið saman af Lárusi Sigurbjörnssyni og Yngva Thorkelssyni í samráði við Guðlaug Rósinkranz um vígslu Þjóðleikhússins.

 

Jónas Jónson frá Hriflu: Þjóðleikhúsið - þættir úr byggingasögu, Ísafoldarprentsmiðja h.f., Reykjavík, 1953

Byggingasaga Þjóðleikhússins rakin ítarlega af Jónasi Jónssyni frá Hriflu.

 

Þjóðleikhúsið 5 ára, Þjóðleikhúsið, Reykjavík, 1955

Skýrsla um störf Þjóðleikhússins fyrstu fimm árin. Vigdís Finnbogadóttir tók saman í samráði við Guðlaug Rósinkranz þjóðleikhússtjóra.

 

Þjóðleikhúsið 10 ára, Þjóðleikhúsið, Reykjavík, 1960

Skýrsla um störf Þjóðleikhússins á árunumum 1955-1960. Vigdís Finnbogadóttir tók saman í samráði við Guðlaug Rósinkranz þjóðleikhússtjóra.

 

Þjóðleikhúsið 20 ára, Þjóðleikhúsið, Reykjavík, 1970

Skýrsla um störf Þjóðleikhússins á árunum 1960-1970. Oddur Björnsson tók saman í samráði við Guðlaug Rósinkranz þjóðleikhússtjóra.

 

Þjóðleikhúsið 35 ára, Þjóðleikhúsið, Reykjavík, 1986

35 ára afmælisrit Þjóðleikhússins. Árni Ibsen tók saman.

 

Guðlaugur Rósinkranz: Allt var það indælt stríð, , Örn og Örlygur 1977

Æviminningar Guðlaugs Rósinkranz, fyrsta þjóðleikhússtjórans. Hann gengdi embættinu frá 1950 til 1972, eða í 22 ár.

 

Baldur Hermannsson: Ævars saga Kvaran, Örn og Örlygur, Reykjavík 1989

Ævisaga Ævars Kvaran sem var á samningi sem leikari við Þjóðleikhúsið frá stofnun þess til ársloka 1980. Hann lék á annað hundrað hlutverka við leikhúsið á þessum tíma. Ævar rak auk þess leiklistarskóla í áraraðir, þar sem margir merkir leikarar fengu sína fyrstu tilsögn í greininni.

 

Eðvarð Ingólfsson: Róbert - ævisaga listamanns, Æskan, Reykjavík, 1993

Ævisaga Róberts Arnfinnssonar, sem lék í Þjóðleikhúsinu frá stofnun þess.

 

Njörður P. Njarðvík: Sá svarti senuþjófur, Bókaútgáfan Skálholt, 1963

Ævisaga Haraldar Björnssonar leikara. Haraldur var fyrsti íslenski leikarinn sem sótti formlegan leiklistarskóla. Bókin er skemmtileg aflestrar, og ber vitni um þennan sérstaka persónuleika.

 

Gunnar M. Magnúss. (ritstj.): Haraldur Björnsson 1915-1945, Hrappseyjarprent, Reykjavík 1945

Rit gefið út á 30 ára leikafmæli Haraldar Björnssonar.

 

Jóhannes Helgi: Valur og leikhúsið, Arnartak, Reykjavík, 1982

Ævisaga Vals Gíslasonar leikara í viðtalsformi. Í bókinni er einnig rætt við listamenn sem voru samtíða Vali í leikhúsinu: Gunnar Eyjólfsson, Klemenz Jónsson, Svein Einarsson, Helga Skúlason og Helgu Bachmann.


Ath. þessi listi er ekki tæmandi. Allar ábendingar um frekari heimildir vel þegnar á netfang fræðsludeildarinnar: fraedsla@leikhusid.is