Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Tenglasafn > Leikskáld og leiklistarfrömuðir > Henrik Ibsen
Henrik Ibsen

Henrik Ibsen

ártöl og atburðir

 

Skien

1828  Henrik Johan Ibsen fæðist þann 20. mars í norska smábænum Skien, annað barn hjónanna Knuds Ibsens kaupmanns og konu hans Marichen. Elsta barnið deyr, en Ibsen eignast fjögur yngri systkini. Fjölskyldan tilheyrir yfirstéttinni í Skien.

1835  Knud Ibsen verður gjaldþrota og fjölskyldan sest að á Venstøp, litlu sveitabýli utan við Skien, sem áður var sumarbústaður fjölskyldunnar.

1843  Ibsen fermist. Fjölskyldan flytur aftur til Skien. Ibsen flytur að heiman þann 27. desember. 

 

Grimstad

1844  Kemur í ársbyrjun til sjávarþorpsins Grimstad og gerist lærlingur hjá lyfsala. Hann býr við mikla fátækt þau sex ár sem hann er í Grimstad. Hann les mikið í frístundum og yrkir ljóð.

1846  Ibsen eignast son utan hjónabands með Else Sophie Jensdatter, sem er ein af þjónustustúlkunum á heimili lyfsalans. Hann fyrirverður sig fyrir þetta og heldur því leyndu en borgar meðlag með drengnum samviskusamlega í fjórtán ár.

1849  Lýkur við sitt fyrsta leikrit, Catilina.

 

Kristjanía

1850  Ibsen flytur til Kristjaníu (nú Osló) í þeim tilgangi að hefja læknanám við háskólann, en lýkur ekki undirbúningsnámi, enda eiga skriftir nú huga hans allan. Á leiðinni til Kristjaníu heimsækir hann fjölskyldu sína og fæðingarbæ í síðasta sinn. Hann hefur ekkert samband við fjölskylduna upp frá þessu, fyrir utan samskipti sem hann á við Hedvig systur sína. Starfar sem ritstjóri stúdentablaðs og vikublaðsins Andhrimner. Catilina er gefið út af vini Ibsens, Ole Schulerud í 250 eintökum og er dulnefni höfundarins Brynjolf Bjarme. Kristjaníuleikhúsið sýnir einþáttung Ibsens Kjæmpehøien þrisvar sinnum.

 

Björgvin

1852  Ole Bull ræður Ibsen til Norska leikhússins í Björgvin, þar sem honum er meðal annars ætlað að skrifa leikrit. Námsferð til að kynnast leikhúsi í Kaupmannahöfn og Dresden.

1853              Sancthansnatten er frumsýnt í Norska leikhúsinu en er aðeins sýnt tvisvar sinnum. Þetta er eina leikrit Ibsens sem hann vildi ekki láta gefa út.

1854              Kjæmpehøien er sýnt í Norska leikhúsinu í nýrri gerð en fær slæmar viðtökur.

1855  Fru Inger til Østeraad er frumsýnt í Norska leikhúsinu og er sýnt tvisvar sinnum.

1856  Ibsen ákveður að breyta til, leitar fanga í þjóðvísum og þjóðsögum og semur Gildet på Solhaug (Veisluna á Sólhaugum). Verkið er frumsýnt í Norska leikhúsinu í Björgvin og sýnt þar við miklar vinsældir. Það er einnig tekið til sýninga í Kristjaníuleikhúsinu og hjá Dramaten í Stokkhólmi. Ibsen trúlofast Suzannah Thoresen.

1857  Olaf Liljekrans er frumsýnt en hlýtur ekki góðar viðtökur.

 

Kristjanía

1857             Ráðinn listrænn stjórnandi við Norska leikhúsið í Kristjaníu. 

1858              Kvænist Suzannah Thoresen. Hærmændene på Helgeland (Víkingarnir á Hálogalandi) frumsýnt í Norska leikhúsinu í Kristjaníu.

1859              Einkasonurinn Sigurd fæðist 23. desember.

1860  Skrifar Svanhild, sem er uppkast að Kjærlighedens Komedie. 

1862              Norska leikhúsið í Kristjaníu verður gjaldþrota. Ibsen fær styrk til að ferðast til Gudbrandsdalen og Vestlandet og safna þjóðlegum fróðleik. Kjærlighedens Komedie kemur út á bók en er ekki frumflutt fyrr en 1873 í Kristjaníuleikhúsinu. Ráðinn sem bókmenntaráðunautur við Kristjaníuleikhúsið.

1863              Kongs-emnerne (Konungsefnin) kemur út.

1864              Sviðsetur sjálfur Konungsefnin í Kristjaníuleikhúsinu í ársbyrjun og sýningin er mikill sigur. Fær ferðastyrk og flytur með fjölskyldu sína til Rómar. 28 ár líða þar til hann flytur heim til Noregs á ný.

Róm

1866             Ljóðleikurinn Brand (Brandur) er gefinn út og fær stórkostlegar viðtökur. Ibsen verður frægur um alla Evrópu og Norska stórþingið veitir honum skáldalaun. Verkið er fyrst sviðsett í Nýja leikhúsinu í Stokkhólmi 1885.

1867              Kjærlighedens Komedie kemur út í endurskoðaðri útgáfu. Ljóðleikurinn Peer Gynt (Pétur Gautur) er gefinn út og verður annar stórsigur fyrir Ibsen. Verkið er frumflutt í Kristjaníuleikhúsinu tæpum áratug síðar, 1876.

 

Dresden

1868              Fjölskyldan flytur til Dresden þar sem hún býr í sjö ár.

1869  De unges Forbund kemur út og er frumsýnt í Kristjaníuleikhúsinu. Ferðast um París til Egyptalands og er viðstaddur sem fulltrúi Svíþjóðar og Noregs þegar Súesskurðurinn er opnaður.

1871  Sendir frá sér sitt fyrsta og eina ljóðasafn, Digte.

1873              Kejser og Galilæer kemur út. Verkið er frumflutt í Leipzig 1896.

1874             Heimsækir Noreg, dvelur í Kristjaníu og ferðast þaðan til Stokkhólms. Fru Inger til Østråt kemur út í nýrri gerð.

 

München

1875              Catilina kemur út í nýrri gerð. Fjölskyldan flytur til München og býr þar í þrjú ár. 

1877              Samfundets støtter (Máttarstólpar þjóðfélagsins) frumsýnt í Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn. Ibsen gerður heiðursdoktor við háskólann í Uppsölum. 

 

Róm

1878  Flytur á ný til Rómar, þar sem hann er búsettur í sjö ár, með stuttum hléum.

1879  Et dukkehjem (Brúðuheimili) kemur út á prenti og er frumflutt í Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn.

1881              Gengangere (Afturgöngur) kemur út. Verkið er frumflutt í Aurora Turner Hall leikhúsinu í Chicago árið eftir.

1882  En folkefiende (Þjóðníðingur) kemur út og er frumflutt í Kristjaníuleikhúsinu í ársbyrjun 1883.

1883  Gildet på Solhaug kemur út í nýrri gerð. 

1884              Vildanden (Villiöndin) kemur út og er frumflutt á Den Nationale Scene í Björgvin í ársbyrjun 1885.

 

München

1885              Heimsækir Noreg eftir ellefu ára fjarveru. Flytur til München þar sem hann býr í sex ár. 

1886              Rosmersholm (Rosmershólmur) kemur út og er frumflutt á Den Nationale Scene í Björgvin í ársbyrjun 1887.

1887   Dvelur um sumarið í Sæby á Jótlandi, ferðast til Gautaborgar, Stokkhólms og Kaupmannahafnar.

1888   Fruen fra havet (Konan frá hafinu) kemur út og er frumflutt í Kristjaníuleikhúsinu í febrúar 1889. 

1889              Sumardvöl í Gossensass í Týról í síðasta sinn. Kynnist Emilie Bardach, sem er 27 ára, en hún er ein nokkurra ungra kvenna sem leika mikilvægt hlutverk í lífi og list Ibsens síðustu árin. 

1890              Hedda Gabler kemur út og er frumflutt í Residenztheater í München í janúar 1891. 

 

Kristjanía

1891  Sest að í Kristjaníu. Kynnist píanóleikaranum Hildur Andersen, sem þá er 27 ára. Ibsen hefur ferðast mikið um ævina og dvalið víða í Evrópu í lengri eða skemmri tíma, en upp frá því að hann flytur aftur heim til Kristjaníu ferðast hann ekki lengra en til Svíþjóðar og Danmerkur.

1892              Bygmester Solness (Sólness byggingameistari) kemur út og er frumflutt í Lessingtheater í Berlín snemma árs 1893. Sigurd Ibsen kvænist Bergliot Bjørnson.

1894  Lille Eyolf (Eyjólfur litli) kemur út og er frumflutt í Deutsches Theater í Berlín í janúar 1895. 

1895  Flytur inn í íbúð á horni Arbiensgate og Drammensveien í Kristjaníu, þar sem hann býr til dauðadags. 

1896  John Gabriel Borkman (Jón Gabríel Borkmann) kemur út og er frumflutt samtímis í sænska leikhúsinu og finnska leikhúsinu í Helsinki 10. janúar 1897. 

1898             Sjötugasta afmælisdegi Ibsens fagnað í Kristjaníu, Kaupmannahöfn og Stokkhólmi.

1899  Når vi døde vågner (Þegar við hin dauðu vöknum) kemur út og er frumflutt í Hoftheater i Stuttgart í janúarlok 1900. 

1900  Fær hjartaslag í fyrsta sinn. 

1906  Ibsen deyr 23. maí, sjötíu og átta ára að aldri.

 

sýningar á verkum Ibsens

Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is

 



Hefur þú komið á þessa síðu áður?

Já, mjög oft.
Já, nokkuð oft.
Já, nokkrum sinnum.
Já, örsjaldan
Nei, aldrei.