Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Tenglasafn > Leikhópar og leikhús
Leikhópar og leikhús

Ísland:

 

Þjóðleikhúsið

 

Leikfélag Reykjavíkur

 

Leikfélag Akureyrar

 

Möguleikhúsið

 

Hafnarfjarðarleikhúsið

 

Á senunni

 

Sjálfstæðu leikhúsin

 

Bandalag íslenskra leikfélaga 

Vefur íslensku áhugaleikhúsanna. Mikið af efni og frjó umræða um íslenskt áhuga- og atvinnuleikhús.

 

Norðurlönd:

 

Finnska Þjóðleikhúsið

 

Tenglasafn yfir helstu leikhús í Noregi

 

Tenglasafn yfir leikhús og leiklist í Svíþjóð

 

Kungliga dramatiska teatern, (betur þekkt sem Dramaten)

Dramaten er þjóðleikhús Svía í Stokkhólmi. Þar eru færð upp klassísk verk, ný sænsk verk og erlend verk, auk leiklistar fyrir börn og ungt fólk.

 

Malmö Dramatiska Teater

Borgarleikhúsið í Malmö. Leikhúsið leggur áherslu á breidd í verkefnavali og hefur yfir tveimur leiksviðum að ráða.

 

Þýskaland:

 

Volksbühne

 

Schaubühne

 

Berliner Ensemble

Bretland:

 

The Royal National Theatre

Breska þjóðleikhúsið í London. Húsið er opið frá klukkan tíu á morgnana til ellefu á kvöldin á hverjum degi. Þó ætlunin sé ekki að sjá leiksýningu, er gaman að fara þangað, kíkja í bókabúðina og setjast niður á frábæru kaffihúsi í anddyrinu og drekka í sig stemmninguna. Leikhúsbyggingin, sem tekin var í notkun árið 1976, státar af  þremur sölum, auk tilraunasviðs þar sem lögð er áhersla á ný leikverk. Leiksviðin bera hvert sittt nafn. Olivier er stærst þeirra, en áhorfendur sitja í hálfhring í kringum það. Lyttleton er hefðbundnara kassasvið, og Cottesloe er minnsti salurinn, en þar eru sætin laus og hægt að breyta sætaskipaninni milli sýninga. Alls rúmast 2500 manns í þessum þremur sölum. 

 

Breska þjóðleikhúsið, líkt og hið íslenska, leggur áherslu á að hafa breidd í verkefnavali sínu. Þar eru sett upp klassísk verk, ný leikrit, söngleikir og farsar. Þegar uppfærsla slær í gegn í þjóðleikhúsinu, er hún framseld til einhvers West-End leikhúsanna svo nýjar sýningar komist að í húsinu. Þannig getur leikhúsið alltaf skipulagt sýningardagskrár sínar langt fram í tímann, og yfirleitt er mögulegt að bóka miða á sýningar með nokkurra mánaða fyrirvara.

 

The Royal Court Theatre

The Royal Court leikhúsið í London hefur frá árinu 1956 lagt höfuðáherslu á ný leikverk og stuðningi við ung leikskáld. Það hefur verið kallað eitt mikilvægasta leikhús heims vegna þessa. Þetta fyrsta ár, 1956, var einmitt frumflutt þar  leikritið ,,Horfðu reiður um öxl? eftir John Osborne, sem er talið hafa markað tímamót í breskri leikritun. Mörg af þekktustu og áhrifamestu leikskáldum samtímans hófu feril sinn  í Royal Court. Fyrir utan Osborne má nefna Arnold Wesker, John Arden, Ann Jellicoe, N F Simpson og Edward Bond.  Af yngri skáldum má nefna Joe Penhall, Meredith Oakes, Sarah Kane, Martin McDonagh, Mark Ravenhill, Conor McPherson o.fl.

 

Tvö rými eru í leikhúsinu sem er við Sloane Square í London. Annars vegar hefðbundið svið með sætum fyrir 400 og hins vegar lítið stúdíó-rými, þar sem eru sæti fyrir um 60 manns.

 

Barbican Centre

Aðsetur The Royal Shakespeare Company í London.

 

Nýtt Trestle Theatre Company

       Breskur leikhópur sem ferðast út um allt. Er frægur fyrir sérstaka grímunotkun

 

Útvarpsleikhús:

 

Skyggnst á bakvið "hátalarana" hjá BBC

Hér er útlistað í stuttu máli hvernig útvarpsleikrit verður til, og hvert hlutverk leikstjóra, leikara og annarra er í útvarpsleikhúsi.

 

Útvarpsleikhúsið

Rás 1 Ríkisútvarpsins er eina íslenska útvarpsrásin sem rekur útvarpsleikhús. Á heimasíðunni þeirra er að finna ágætar upplýsingar um þau verk sem flutt eru, og starfsemi leikhússins. Tilvalið er líka að skrá sig á póstlista Útvarpsleikhússins, og fá upplýsingar áminningar um útvarpsleikritin send í tölvupósti. Á svæði útvarpsleikhússins á ruv.is er líka að finna ágætt safn pistla sem fluttir hafa verið um leiklist í útvarpinu á síðustu misserum.

Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is

 



Hefur þú komið á þessa síðu áður?

Já, mjög oft.
Já, nokkuð oft.
Já, nokkrum sinnum.
Já, örsjaldan
Nei, aldrei.