Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Tenglasafn > Í leit að leiklistarnámi?
Í leit að leiklistarnámi?

Leiklistarnám

Leiklist (list leikarans), leikstjórn, dramatúrgía, leikritun, leiklistarfræði, leiklistarsaga, handritagerð, stjórnun, söngleikjalist, búningahönnun, leikmunagerð, sviðsstjórn, leikmyndahönnun, lýsing, hljóð, sviðsstjórn og leiklistarkennsla. Allt eru þetta skapandi og skemmtilegar námsleiðir sem tengjast leiklist og undir hverri námsleið eru margir undirflokkar.

 

Þegar ákvörðun hefur verið tekin um að sækja um leiklistarnám erlendis, er stórt skref þegar stigið. Val á heppilegum skóla og námi er bæði vandasamt og flókið. En um leið er það líka mjög spennandi, því möguleikarnir eru miklir - nánast óendanlegir.  

 

Það er auðvelt að týnast í þessum frumskógi, en hér eru nokkrar vörður til að miða við:

 

·          Ekki viss um hvað þú vilt læra eða hvar? Hér eru nokkrar spurningar til þess að auðvelda þér fyrstu skrefin í ákvarðanatökunni.

·          Á heimasíðu LÍN er hægt að finna upplýsingar um skóla sem skilgreindir eru sem lánshæfir. Ath. þessi listi er ekki tæmandi yfir lánshæft nám. Þarna er einungis um að ræða nám sem LÍN hefur lánað til áður.

·          Tenglasafn yfir skóla í ýmsum löndum. Ath. listinn er ekki tæmandi, heldur er hann hugsaður til þess að gefa svolitla mynd af því sem er í boði.

·          Hvernig ber maður sig að í inntökuprófi? Hér er m.a. lýsing nokkurra einstaklinga á reynslu sinni af inntökuprófum bæði hér heima og erlendis, og tenglar á erlendar síður sem gefa ráð í þessum efnum.

Lestu dagbók aðstoðarmanns leikstjóra í Pabbastrák!