Hér á eftir fylgja nokkrir leikir sem gaman er að nota þegar unnið er með hóp í fyrsta sinn, og reyndar ekki síður sem hluta af reglubundinni upphitun.
Hér er áherslan aðallega á fernt: líkamlega upphitun, samstillingu hópsins, fókus og síðast en ekki síst hið frábæra frelsandi afl; hlátur.
Góða skemmtun!

Ávaxtaskálin
Þessi klassíski barnaleikur er kjörinn til þess að byrja leiklistartíma / æfingu með hóp sem þekkist lítið eða hóp sem hefur lítið gert saman á þessum nótum áður, börnum sem fullorðnum. Athyglin er á einum og einum, en bara í stutta stund í einu, og þátttakendur deila persónulegum upplýsingum með hver öðrum en ekki meira en þeir kjósa sjálfir.
Setið á stólum í hring. Einn þátttakandi (A) stendur í miðjunni. Það er ekki stóll fyrir hana/hann. Stjórnandi skiptir hópnum niður í epli, perur og banana. Markmið (A) er að ná stól. Ef (A) kallar epli, eiga öll eplin að skipta um stóla við hin ,,eplin", en (A) á að reyna að ná stól líka. Á sama hátt getur hún/hann kallað upp hinar ávaxtategundirnar.(A) má líka segja: ávaxtaskál. Þá eiga allir að skipta um sæti. Sá sem ekki nær stól stendur í miðjunni næst.
Takmark (A) er alltaf að ná í sæti.

Tilbrigði: Nú má sá/sú sem stendur í miðjunni biðja t.d. alla sem eru í svörtum sokkum að standa upp - en bara ef hún/hann er sjálf/ur í svörtum sokkum.
Dæmi um fleiri óskir:
,,Allir sem fengu sér safa í morgun"
,,Allir sem eiga systur"
,,Allir sem horfðu á sjónvarp í gærkvöldi"
,,Allir sem eiga hjól"
,,Allir sem vöknuðu fyrir klukkan níu"
o.s.frv. o.s.frv.
Einfaldur nafnaleikur
Fyrir hóp sem aldrei hefur unnið saman, er kjörið að fara í þennan nafnaleik. Það má kynna leikinn sem leið til þess að læra nöfn hvers annars, en fyrst og fremst er þetta ísbrjótur í því að koma fram. Hér stígur hver einstaklingur fram í sviðsljósið í örstutta stund, en verkefnið er einfalt og allir taka þátt. Hér er líka farið mjúklega að tjáningu (gleði, reiði), án áhættu fyrir þátttakendur. Ef einhver gerir sig að fífli, þá gera það allir.
- Þátttakandi stígur inn í hringinn (ágætt að stjórnandi byrji), gerir einhverja hreyfingu (hvað sem er), og segir nafnið sitt um leið.
- Hinir í hópnum bregðast við allir í einu með því að herma eftir hreyfingunni og endurtaka nafnið.
- Látið ganga hringinn, og hópurinn endurtekur alltaf.
- Farið aðra umferð, en nú á að hvísla nafnið. Í þriðju umferð kallið nafnið hátt, í fjórðu umferð segið nafnið reiðilega og í þeirri fimmtu segið nafnið með mikilli gleði.
Náttúruhamfarir
Einn sem kemur blóðinu á hreyfingu, og heilanum í gang!
Stjórnandi kallar upp einhverja af eftirfarandi skipunum og hópurinn gerir tilheyrandi hreyfingar. Ef þátttakandi gerir ranga hreyfingu er hann/hún úr og/eða sá sem er síðastur til að gera rétta hreyfingu.
Eldur! - Láta sig falla á gólfið, rúlla sér áfram, skríða og grípa í einhvern af félögum sínum.
Flóð! - Stökkva upp á borð/stól eða annað tiltækt.
Jarðskjálfti! - Hlaupa í skjól og standa uppvið vegg eða í dyragætt.
Fellibylur! -Láta sig falla niður á gólf, liggja marflöt og hristast upp og niður eins og væru hrist.
Dauðir fiskar
Hentugur fyrir yngri hópa, til dæmis til þess að ljúka leiklistaræfingu/tíma. Hér reynir á slökun, fókus og lágmarks líkamlega orku. Góð leið til þess að róa hóp niður, til dæmis eftir mikinn hasar.
Þátttakendur liggja á maganum eða bakinu, dreifðir um rýmið, og eiga að liggja grafkyrrir. Hér má hvorki heyrast hljóð né sjást hreyfing. Stjórnandinn gengur um, og snertir kollinn á þeim sem hann sér hreyfa sig eða heyrast í. Þeir eru þá úr, og þurfa að fara hljóðlaust til hliðar og fylgjast með. Það má lika leika þennan leik þannig að stjórnandi eða þátttakendur reyna bókstaflega að fá aðra þátttakendur til þess að hlæja, og þar með hreyfa sig.
Eltingaleikir:
Gömlu góðu eltingaleikirnir standa alltaf fyrir sínu. Þeir hita upp líkamann, stilla saman hópinn og losa um spennu. Það er hægt að fara í eltingaleik þó plássið sé ekki mikið. Verið bara dugleg að búa til ykkar eigin útgáfur af eltingaleikjum, með allavega auka-reglum og útúrdúrum. Hér eru nokkrar hugmyndir, gamlar og nýjar. Henta öllum aldurshópum.
Sprengi-eltingaleikur
Bráðskemmtileg útgáfa af eltingaleik
Venjulegur eltingaleikur, nema að sá sem er ,,klukkaður" þarf að springa með háum hvelli og tilheyrandi líkamshreyfingum.Hér er aðal-áherslan á sprenginguna. Stjórnandinn biðum um stórar sprengjur, bæði í rödd og líkama. Góð leið til þess að losa um hömlur í nýjum hóp, t.d. Hér mætti líka biðja alla þátttakendur að springa um leið og sá sem klukkaður er, og fá þannig prýðisgóða raddupphitun í leiðinni.
Lambið, úlfurinn og heysátan.
(Fínt fyrir stóran hóp - hentar frá u.þ.b. 6 ára og uppúr.)
Einn úr hópnum er úlfur og annar er lamb. Restin af hópnum dreifir sér um rýmið og krýpur niður á gólf. Þau eru heysátur. Úlfurinn eltir lambið um rýmið, en lambið getur bjargað sér með því að stökkva yfir heysátu. Þá breytist lambið í heysátu - og heysátan í úlf! Um leið breytist úlfurinn í lamb. Mikilvægast af öllu við þennan leik eru leikhljóðin og látbragðið. Úlfurinn urrar, og hleypur um með loppurnar tilbúnar til að hremma lambið. Lambið hleypur jarmandi undan honum. Um leið og heysátan breytist í úlf urrar hún ógurlega, og úlfurinn fer að jarma aumingjalega. Þó þetta hljómi kannski flókið, er þetta ótrúlega einfaldur leikur að læra, og stórkostlega skemmtilegur.
Tilbrigði:
Hægt er að leika sér með alls kyns tilbrigði við þennan leik með ýmsum aldurshópum, s.s. apinn og bananinn, ljóskan og perrinn (Frábært með menntaskólaaldri!) og músin og ljónið. Allt með tilheyrandi látbragði og leikhljóðum - og alltaf jafn spennandi og skemmtilegt!