Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Leiklist í skólum > Leiklistaræfingar og leikir > Hvers vegna hita upp?
Hvers vegna hita upp?

Upphitunaræfingar - hvers vegna?

 

Vegna þess að upphitunaræfingar...

 

·          ...mýkja og hita upp líkamann.

·          ...hrista saman hópinn og setja alla í gír fyrir það sem í vændum er.

·          ...skerpa fókus og einbeitingu.

 

Í raun ætti engin leiklistartími eða æfing að hefjast án upphitunar. Upphitunaræfingar gegna í fyrsta lagi því augljósa hlutverki að liðka og hita upp líkamann og koma þannig í veg fyrir að líkamleg átök valdi meiðslum. Þetta þekkist  úr íþróttunum. En upphitun í leiklist gegnir ekki síður því hlutverki að samstilla hópinn og koma öllum í rétta stemmningu til að fara að vinna.

 

Í leiklist erum við að vinna með okkur sjálf, bæði líkama og sál. Þess vegna væri það glapræði að ætla heilum hóp að byrja án upphitunar á leiklistaræfingum. Einn tveir og túlka!. Við þurfum að koma okkur í rétt ástand - komast í stuð - áður en við byrjum. Hópar eru auðvitað ólíkir, og þess vegna er misjafnt hvaða æfingar henta hvaða hóp. En vel skipulögð og góð upphitun er eins og vítamínsprauta fyrir alla. Hún kemur líkamanum í startholurnar, skerpir einbeitingu og ræsir ímyndunaraflið.

 

Sumir upphitunarleikir eru þannig að það er hægt að leika þá daglega án þess að fá leið á þeim. Það er alger óþarfi að vera að finna upp á einhverju nýju á hverjum degi. Njótið þess að verða betri í leiknum á hverjum degi, og finna hvernig hópurinn samstillist með hverri æfingu. Æskilegt er að stjórnandi taki fullan þátt í æfingunum. Upphitun þarf heldur ekki að einskorðast við leikhópinn ef verið er að vinna sýningu, heldur er meira en sjálfsagt að tæknifólk og aðrir hlutaðeigandi taki þátt.

Meira: Leiklistaræfingar og leikir

 

Höfundarréttur © Vigdís Jakobsdóttir 2003

Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is

 



Hefur þú komið á þessa síðu áður?

Já, mjög oft.
Já, nokkuð oft.
Já, nokkrum sinnum.
Já, örsjaldan
Nei, aldrei.