Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Leiklist í skólum > Leiklistaræfingar og leikir > Að segja sögu
Að segja sögu

Krónan gengur

Æfing í að segja sögu sem hópur. Athugið að sennilega er betra að gera þessa æfingu standandi í hring, annars er hætta á að þátttakendur sofni á verðinum. Heilinn starfar betur á tveimur fótum. Látið krónuna ganga þvers og kruss yfir hringinn, en ekki í röð. Þannig þurfa allir að vera vakandi allan tímann. Ítrekið við þátttakendur að flækja ekki söguna um of. Takmarkið er að segja samhangandi sögu sem hópur, hratt og örugglega.

 

·          Hópurinn situr eða stendur í hring.

·          Stjórnandi heldur á krónupeningi (eða einhverjum öðrum hlut) og byrjar að segja sögu (eitthvað mjög einfalt), eina setningu eða meira.

·          Stjórnandi hættir í miðju kafi, jafnvel í miðri setningu, og lætur krónuna ganga til einhvers annars í hópnum, sem heldur áfram að segja söguna. Látið ganga koll af kolli. Sá sem er með krónuna verður að tala. Ekki hugsa, bara tala og láta krónuna ganga.

 

Tilbrigði:

Krónan (eða einhver annar hlutur sem rúmast í lófa) getur líka nýst sem tæki til að stýra umræðum í yngri hópum. Sá sem hefur krónuna/pennann/tuskudýrið hefur rétt til þess að tala, og enginn annar.

Höfundarréttur © Vigdís Jakobsdóttir 2003

Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is

 



Hefur þú komið á þessa síðu áður?

Já, mjög oft.
Já, nokkuð oft.
Já, nokkrum sinnum.
Já, örsjaldan
Nei, aldrei.