Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Leiklist í skólum > Könnun á stöðu leiklistar í grunnskólum
Könnun á stöðu leiklistar í grunnskólum

Könnun fræðsludeildar Þjóðleikhússins á þætti leiklistar í skólum

Eitt fyrsta verkefni fræðsludeildarinnar eftir stofnun hennar vorið 2002, var að ráðast í að gera nokkuð ítarlega könnun meðal aðstoðarskólastjóra og kennara í grunnskólum í Reykjavík. Tilgangurinn var að fá einhverja mynd af því hvort og hvernig leiklist er sinnt í skólunum, hvaða aðferðum er beitt og hvernig það starf skilar sér. Svörun reyndist nokkuð góð. 39 af 40 aðstoðarskólastjórum sáu sér fært að svara spurningalistum, í 29 skólum var gerð handauppréttingakönnun þar sem 655 kennarar svöruðu í allt, og rætt var ítarlega við 6 kennara (valdir eftir ábendingum) sem nota leiklist í sinni kennslu. Könnunin var unnin í samstarfi við Maríu Pálsdóttur leikkonu, sem notaði hana sem hluta af B.ed. ritgerð sinni frá KHÍ.


Leiksýningar í öllum skólum
Niðurstöður könnunarinnar voru um margt áhugaverðar. Hér verður aðeins drepið á því helsta. Ljóst er að áhugi kennara á leiklist og notkun leiklistar í kennslu er síst minni en búist var við, sérstaklega ef tekið er tillit til skorts á kennsluefni og fræðslu um leiklist fyrir kennara.


655 kennarar í 29 skólum tóku þátt í handauppréttingakönnun sem gerð var á kennarafundum. 50,5% þeirra sagðist setja upp leikþætti eða leikrit með nemendum sínum einu sinni á önn eða oftar. Hins vegar sinna aðeins 3,5 % aðspurðra leiklist sem sérfagi í sinni kennslu. Þriðjungur kennara hefði áhuga á því að sækja námskeið í leiklistarkennslu, stæði það til boða.


Í ljós kom að í öllum skólunum eru settar upp leiksýningar í einhverju formi reglulega. Oftast er um að ræða jólaskemmtanir og árshátíðir, en einnig er nokkuð um hefðbundnar leiksýningar og auðvitað smærri viðburði. Þessar sýningar / skemmtanir eru oftast í höndum áhugasamra bekkjarkennara, en í nokkrum skólum eru kennarar með leiklistarmenntun sem halda utanum þetta starf.


Þessar niðurstöður eru í hrópandi ósamræmi við þær upplýsingar að í fjórðungi skólanna er bágborin eða engin aðstaða til leiklistariðkunar og í aðeins einum skóla af 39 er starfandi leiklistarklúbbur. Aðeins í örfáum skólum er leiklist kennd sem valgrein eða sérgrein. Íþrótta- og tómstundaráð býður upp á leiklistarnámskeið, en innan við helmingur skólanna nýtir sér þau.


Fræðsludeild Þjóðleikhússins er ætlað að styrkja nemendur og kennara í þessu mikilvæga leiklistarstarfi innan skólanna, opna dyr leikhússins fyrir þeim og miðla af þeirri fagþekkingu sem óneitanlega er til staðar í leikhúsinu. Það er trú okkar að með aukinni þekkingu kennara á leiklist, og auknum samskiptum milli kennara og listamanna, megi styrkja listgreinina í skólakerfinu. Leiklist er í dag einungis til í námsskrá fyrir grunnskóla sem ,,leikræn tjáning", og er skilgreind sem þverfagleg. Þar af leiðandi hefur hún ekki fastan tíma á stundaskrá, heldur er ætlaður staður í kennslu annarra námsgreina, s.s. íslensku, sögu, stærðfræði og landafræði. Í námskrá í leikrænni tjáningu er heldur ekki snert á neinu sem snertir listgreinina sem menningarlegt fyrirbæri, heldur eininungis sem tjáningarleið. Takmarkið er að sjálfsögðu að leiklistin fái þann sess sem hún á skilið í námsskrám og verði meðtekin sem sjálfstæð námsgrein rétt eins og tónlist og myndlist.

 

Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is

 



Hefur þú komið á þessa síðu áður?

Já, mjög oft.
Já, nokkuð oft.
Já, nokkrum sinnum.
Já, örsjaldan
Nei, aldrei.