Í góðu samstarfi við leikmunadeild Þjóðleikhússins útbjuggu Þórunn E. Sveinsdóttir búningahönnuður og Frosti Friðriksson leikmyndateiknari þennan forláta kistil fyrir fræðsludeildina í tilefni af sýningunni Sitji Guðs englar.
Kassinn er stútfullur af merkilegum hlutum frá miðri 20. öld, fatnaði, skrautmunum og áhöldum. Skólar og kennarar sem vilja vinna þematengt útfrá leiksýningunni, geta fengið kassann að láni frá leikhúsinu í allt að eina viku í senn. Þarna eru á einum stað margir hlutir frá tíma verksins, sem nota má sem kveikju til ýmiss konar verkefna í skólastofunni. Munir tengdir veru hersins á Íslandi, gamlir nælonsokkar, snyrtivörur, póstkort, hattar ofl. Sagan verður bókstaflega áþreifanleg þegar lokinu er lyft af þessum töfrakassa og ímyndunaraflið fær vængi.
Sitji Guðs englum fylgir einnig 17 blaðsíðna fræðslupakki sem hægt er að fá sendan í tölvupósti endurgjaldslaut. Sendið einfaldlega póst á fraedsla@leikhusid.is og biðjið um fræðslupakkann fyrir Sitji guðs engla.
|