Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Leiklist í skólum > Fræðslupakkar og kennsluefni > Öxin og jörðin > Viðtal við leikara úr sýningunni
Viðtal við leikara úr sýningunni
Arnar Jónsson leikari leikur  Jón Arason biskup, Sólveig, dóttir Arnars, leikur Þórunni biskupsdóttur  og Halldór Dagur, sonur Sólveigar, leikur bróðurson Þórunnar. Sem sagt þrír ættliðir að leika þrjá ættliði! Fræðsludeildin hafði upp á þeim rétt fyrir sýningu og fékk að smella einni mynd af þeim saman og spyrja þau nokkurra spurninga. 
 




Þrír ættliðir í sömu sýningunni – er þetta ekki bara heimilislegt?

Arnar: Ákaflega! Þetta er mjög sérstakt og skemmtilegt.
Sólveig: Þetta er afskaplega heimilislegt – við erum bara stöðugt á ættarmóti!    

Hvernig gekk að setja sig í spor svona stórbrotinna persóna?
Sólveig: Ég náði mér í flestallar heimildir sem til eru um Þórunni. Það er greinilegt að hún hefur verið mjög framsýn merkiskona. Það umlykur hana mikil reisn. Það hefði verið auðvelt að gera hana að frekri frenju en ég reyndi að draga fram léttleika og húmor í henni. Það er afar merkilegt að hún erfði föður sinn til jafns við bræður sína, það segir mikið til um karakterinn.  

Kom ykkur eitthvað á óvart á æfingatímabilinu- varðandi fólkið og tímana sem það lifði á? Hvað þá?
Arnar: Kannski helst það hve gífurlegar breytingar siðaskiptin höfðu í för með sér. Almannatryggingakerfið sem kaþólska kirkjan hafði komið á var strax slegið af og ekkert kom í staðinn. Jóni fannst ábyrgð sín mikil gagnvart því fólki sem þurfti á hjálp að halda. Hann sá það fyrir að kóngur myndi hrifsa allt fémætt til sín.  Einnig kom á óvart hversu samskiptin við útlönd voru mikil og góð. Fólk fylgdist greinilega vel með því sem fram fór í Evrópu.
Sólveig: Ég gerði stóra uppgötvun þegar ég las bókina – að siðaskiptin voru ekki bara friðsamleg býtti á trúarbrögðum heldur snérust þau um heilmikil pólitísk átök og sjálfstæðisbaráttu. Það var það sem kom mest á óvart.

Hvernig maður var Jón Arason? Var hann bara gráðugur og valdsjúkur eða bar hann hag þjóðarinnar fyrir brjósti? Arnar: Hann bar ábyrgð á stærsta fyrirtæki landsins. Hann hlóð vissulega undir sig og sína en honum var uppálagt að efla hag stólsins og það gerði hann.  

Aðstandendur sýningarinnar fóru til Hóla –hvernig upplifðuð þið það?
Arnar: Ég hafði ekki komið þangað lengi. Þetta var mögnuð upplifun! Að handleika sömu munina varð til þess að maður skynjaði hvað þessi tími er í rauninni stutt frá okkur.   
Sólveig: Þetta var mikil svaðilför en eftirminnileg og áhrifarík. Þetta átti að vera fjögurra tíma skrepp en varð að 8 og hálfum tíma í rútu. Það var komið myrkur þegar við náðum áfangastað en þar var tekið vel á móti okkur! Ég hafði komið að Hólum áður en aldrei með þennan bakgrunn - aldrei verið neitt að hugsa um Jón Arason. Það var magnað að sjá altaristöfluna sem hann lét flytja inn og handleika kaleikana sem hann hafði farið höndum um. Það er greinilegt að þetta fólk lifir ennþá með staðnum. Á  þessum tíma var fólk sískreppandi inn á Grund í Eyjafirði til Þórunnar, það reið yfir Helju og fóru þetta í öllum veðrum, við erum að tala um tveggja daga reið! Enginn setti það fyrir sig. Þessi Hólaferð var mikið upplifelsi og ég mundi vilja fara aftur að sumarlagi og skoða mig betur um.

Halldór- hvernig er að leika?
Ógeðslega gaman! Ég er að fara að æfa leikrit í útvarpinu líka! Ég þarf að læra 10 setningar!  

Ertu búinn að ákveða hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór??
Leikari! Ég er orðinn leikari og ég ætla að vera leikari þangað til ég verð gamall – 90 ára eða eitthvað!

Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is

 



Hefur þú komið á þessa síðu áður?

Já, mjög oft.
Já, nokkuð oft.
Já, nokkrum sinnum.
Já, örsjaldan
Nei, aldrei.