Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Leiklist í skólum > Fræðslupakkar og kennsluefni > Öxin og jörðin > Umræðupunktar
Umræðupunktar
Hér á eftir fylgir nokkuð langur listi yfir umræðupunkta. Þetta er hugsað sem nokkurs konar banki til að leita í, og getur nýst kennurum í umræður með nemendum sínum, að stórum hluta til eða í litlum brotum, allt eftir þörfum. Notið endilega listann sem skapalón fyrir umræður um aðrar leiksýningar líka. Aðlagið hann að aldri nemenda, tímanum sem þið hafið til umráða og að því sem þið viljið leggja áherslu á hverju sinni.

Fyrir yngri nemendur mætti hugsa sér að skipta þeim í hópa áður en farið er í leikhúsið, og hver hópur fær það verkefni að fylgjast með einhverju ákveðnu sérstaklega. Einn hópur gæti t.d. tekið að sér að fylgjast með lýsingunni, annar með búningunum, þriðji með leikurunum (þeim mætti skipta niður á fleiri en einn hóp) o.s.frv. Það er ágætt að vera búin að ræða spurningarnar fyrirfram.

Væntingarnar. Ræðið endilega og kortleggið væntingar nemenda áður en farið er í leikhúsferðina. Þetta getur stutt við umræðurnar eftirá, og verið fræðandi um samhengi væntinga og upplifunar. 

  • Hvernig hefur leiksýningin verið auglýst og hvaða væntingar gera þeir sér útfrá þeim. Hvað geta þær ljósmyndir eða atriði sem þau hafa séð leikin sagt þeim um sýninguna? 
  • Þekkja nemendurnir leikara eða aðra aðstandendur sýningarinnar? Hvað hafa þau séð þessa listamenn gera áður, og hvernig líkaði þeim það? Er til dæmis uppáhalds leikari þeirra í sýningunni? Eða einhver sem þau þekkja persónulega? 
  • Hafa þau heyrt eitthvað um sýninguna, gagnrýni eða viðhorf annarra, og hvaða áhrif hefur það á væntingar þeirra? 
  • Þekkja þau Þjóðleikhúsið, eða eru þau að fara þangað í fyrsta sinn? Við hverju búast þau sem ekki hafa komið þangað áður? 
  • Hafa nemendur lesið bókina?
  • Form verksins 
  • Hvernig er verkið byggt upp? Er það ein samhangandi heild, eða í mörgum brotum?
  • Hvernig eru atriðin í leikritinu tengd saman? Ganga þær tengingar upp?

Leikmyndahönnunin 

  • Var leikmyndin á skjön við eða í samræmi við tegund verksins?
  • Hvers eðlis var leikmyndin? Voru staðir og hýbýli raunveruleg (natúralístísk)?
  • Hvernig var leikmyndin í rýminu? Fyrirferðarmikil? Lítil? Fyllti hún út í rýmið eða loftaði um hana?
  • Hvað getið þið sagt um efnisnotkun, liti og form í leikmyndinni? 
  • Var fleiri en ein leikmynd? Hvernig var samræmi milli þessara mynda? Hæfðu þær sýningunni?
  • Hvernig var leikmyndin notuð af leikurunum? Var hún t.d. bara í bakgrunni, eða notuðu þeir hana mikið (til að sitja, standa eða liggja á, t.d.)?
  • Hvað í leikmyndinni fangaði athygli ykkar, annað hvort á jákvæðan eða neikvæðan hátt? (Hvað fannst ykkur gott eða flott? og hvað ekki? Hvers vegna / ekki?)

Lýsingin

  • Hvernig notaði ljósahönnuðurinn liti og ljós til þess að skapa andrúmsloft í sýningunni?
  • Hentaði lýsingin sviðsmyndinni?
  • Var ljós og skuggi notað á áberandi hátt á einhverjum stað í sýningunni?
  • Hvernig voru ljósin notuð til að sýna muninn á árstíðum og tíma dags í sýningunni?
  • Hvernig fannst ykkur lýsingin passa við annað í sýningunni?
  • Hvað í lýsingunni fangaði athygli ykkar, á jákvæðan eða neikvæðan hátt?

Leikur

  • Hvernig var leikstíllinn? Léku leikararnir ,,eðlilega”, í ýktum stíl eða mjög alvarlega? Var leikstíllinn skýr? Héldu leikararnir sig við hann allt leikritið?
  • Sköpuðu leikararnir persónur sem voru eins og alvöru fólk, eða voru þær dæmigerðar erkitýpur (steríótýpur)?
  • Hvaða áhrif haldið þið að aldur og reynsla leikara hafi á persónusköpun þeirra? (Hvernig eru eldri og reyndari leikararnir t.d. samanborið við ungu leikarana í sýningunni?)
  • Gerið þið meiri væntingar til þeirra leikara sem eru ,,frægir? / sem þið þekkið / sem þið hafið séð leika áður? 
  • Pössuðu allir leikararnir inn í heildarmynd verksins, eða voru einhverjir sem skáru sig úr á einhvern hátt?
  • Hvernig beittu leikararnir röddinni? Notuðu þeir sína eðlilegu rödd, eða breyttu þeir henni? Heyrðist vel til allra? Var framsögnin skýr hjá öllum?
  • Hvernig beittu leikararnir líkamanum? Voru hreyfingar allra leikaranna í samræmi við persónur þeirra og stíl sýningarinnar?
  • Fannst ykkur allir leikararnir vera þátttakendur í því að segja söguna á sviðinu? Fannst ykkur leikararnir vinna vel saman á sviðinu?
  • Tókuð þið eftir því hvort leikararnir tóku tillit til viðbragða áhorfenda?
  • Hvað fannst ykkur sérstaklega gott við leikinn almennt, og hvað fannst ykkur þurfa að gagnrýna á neikvæðan hátt?

Búningar, förðun og hárgreiðsla

  • Hjálpuðu búningarnir til við að skapa sérstakt andrúmsloft í sýningunni?
  • Hvernig var litanotkunin í búningunum? Fylgdu ákveðnir litir ákveðnum persónum?
  • Hvað segir það ykkur um hverja persónu hvernig hún klæðist?
  • Var sameiginlegur stíll á öllum búningunum, eða voru þeir viljandi látnir vera í ósamræmi?
  • Hvernig hjálpaði búningurinn leikaranum við að túlka persónuna?
  • Voru mikil búningaskipti? Voru búningaskiptin fyrst og fremst til að sýna tíma líða í verkinu?
  • Finnst ykkur hárgreiðsla leikaranna og förðun hafa verið vel heppnuð?
  • Hvað í búningum og útliti leikaranna finnst ykkur hafa heppnast vel, og hvað ekki?

Leikmunir -Leikmunir eru allir lauslegir munir sem notaðir eru í sýningu.

  • Var mikið eða lítið af leikmunum í Öxinni og jörðinni?
  • Var samræmt útlit á leikmunum í sýningunni, eða voru þeir úr ýmsum áttum?
  • Voru einhverjir leikmunir notaðir eingöngu til skrauts? Hvað sögðu þeir okkur þá? Hverju bættu þeir við?
  • Voru einhverjir leikmunir sem vöktu athygli ykkar og hvers vegna?
  • Haldið þið að þurft hafi að búa einhverja leikmuni til sérstaklega fyrir þessa sýningu, eða væri hægt að kaupa alla þessa leikmuni út í búð?
  • Fannst ykkur leikmunir vera notaðir á áhugaverðan hátt í sýningunni, eða var einhverjum leikmunum ofaukið?

Tónlist og leikhljóð

  • Passaði tónlistin og leikhljóðin vel við sýninguna?
  • Hentaði tónlistin og leikhljóðin, og styrkur þeirra, þessum sal?
  • Studdi tónlistin / leikhljóðin leikarana í því að túlka persónur sínar á einhvern hátt?
  • Var tónlistin og leikhljóðin notuð til þess að gefa til kynna tíma eða staðsetningu atriða?
  • Studdi hljóðmyndin við skiptingar milli atriða?
  • Var ákveðið stef í sýningunni, sem var endurtekið?
  • Hvað í hljóðmyndinni fannst þér heppnast best / verst?

Leikstjórn

  • Hlutverk leikstjórans er að hafa yfirumsjón með öllum ofantöldum þáttum. Það eru hans ákvarðanir sem hafa stýrt gjörðum annarra listrænna stjórnenda. Leikmyndahönnuður gerir ekki leikmynd úr pappír og plasti, ef leikstjórinn vill leikmynd úr steini, t.d. Heildaryfirbragð sýningarinnar, hreyfingar leikaranna, val á tónlist og útliti sýningarinnar fer allt í gegnum leikstjórann. Hann ákveður hvernig atriðin eru tengd saman, hvernig leikurum er raðað upp á sviðinu, í hvaða stíl er leikið og hvaða merking er lögð í textann. Allt í náinni samvinnu við aðra listamenn sýningarinnar að sjálfsögðu. 
  • Lagði leikstjórinn meiri áherslu á hið sjónræna (það sem sést) en textann (það sem er sagt), eða hafði það jafnt vægi?
  • Hvernig var heildaryfirbragð sýningarinnar?
  • Hvernig var samband leikenda og áhorfenda ákvarðað af hálfu leikstjórans? Léku leikararnir alltaf eins og það væru engir áhorfendur, eða var samband þarna á milli?
  • Hvernig tókst leikstjóranum upp í því að skapa skemmtiegt eða áhrifamikið andrúmsloft í sýningunni?
  • Hvernig var ,,flæðið? í sýningunni? Rann hún átakalaust milli atriða, eða var viljandi stoppað á milli?

Áhorfendur

  • Hvernig fólk var á sýningunni? 
  • Haldið þið að sýningin hafi haldið áhuga áhorfenda?
  • Haldið þið að væntingar leikhúsáhorfenda hafi verið uppfylltar? Fékk sýningin áhorfendur til að hlæja, gráta eða verða reiðir?

Almennar umræður um verkið eftirá
  • Hvað líkaði ykkur sérstaklega við uppsetninguna? Hvað fannst ykkur skemmtilegast eða mest spennandi?
  • Var eitthvað sem hreyfði við ykkur í sýningunni? hryggði eða hræddi ykkur? Hvenær voru sterkustu augnablik sýningarinnar? Leiddist ykkur einhvern tíma? Hvenær?
  • Var klappað vel fyrir sýningunni í lokin? Finnst ykkur sýningin hafa átt meira eða minna klapp skilið?
  • Hvað lifir skýrast í minningunni um sýninguna eftirá? Af hverju?
  • Minnti leiksýningin ykkur á einhver önnur leikrit sem þið hafið séð, sjónvarpsmyndir eða kvikmyndir? Að hvaða leyti? Að hvaða leyti ekki?

Leikgerð

  • Ef nemendur hafa lesið bókina Öxina og jörðina, er kjörið að ræða aðeins við þá um muninn á bók og leikverki. Væri hægt að nota bók sem handrit, og leika án breytinga? Af hverju ekki? Hvað hefur bókin framyfir leiksýningu og hvað hefur leiksýning fram yfir bók?

Íslenska: Vinnið eigin leikgerð!

  • Setjið nemendum fyrir í hópum að vinna lítið leikið atriði útfrá sama kaflanum í Öxinni og jörðinni. Látið hópana vinna með sama kaflann hvern í sínu horni. Notist við stuttan bút, og gefið takmarkaðan tíma til undirbúnings (t.d. 10 mínútur) Nemendur sýna svo hver öðrum atriðin og bera saman. Að hvaða leyti voru atriðin ólík? Notaðist einhver hópurinn við sögumann? Voru sömu persónurnar í atriðunum? Notuðu þau sama textann? Að hvaða leyti voru áherslur þeirra ólíkar og hvers vegna?
  • Berið svo saman við sama atriði í sýningunni, þegar farið er í leikhúsið!

Myndmennt: Hannið sviðsmyndina og búningana!

  • Tengið vinnuna með leikgerðina við tíma í myndmennt, með því að láta hópana hanna sviðsmynd (á blaði, eða sem módel í þrívídd) fyrir atriðið sitt. Hvað verður að vera á sviðinu og hvers vegna? Hvernig ætti það að líta út? Hvernig ætti litanotkunin að vera og hvers vegna? Hvernig ætti atriðið að vera lýst?
  • Hannið búninga á persónurnar í atriðinu. Rökstyðjið litaval og efnisnotkun. Hvaða litir finnst ykkur hæfa hverri persónu og hvers vegna

Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is

 



Hefur þú komið á þessa síðu áður?

Já, mjög oft.
Já, nokkuð oft.
Já, nokkrum sinnum.
Já, örsjaldan
Nei, aldrei.