Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Leiklist í skólum > Fræðslupakkar og kennsluefni > Öxin og jörðin > Aðstandendur sýningarinnar
Aðstandendur sýningarinnar

Ólafur Gunnarsson

er höfundur bókarinnar sem leikgerðin byggir á. Hann fæddist í Reykjavík 18. júlí 1948. Hann lauk verslunarprófi frá Verslunarskóla Íslands 1969. Ólafur stundaði verslunarstörf hjá Ásbirni Ólafssyni hf. frá 1965 til 1971 og var bifreiðastjóri læknavaktar frá 1972 til 1978. Hann hefur starfað sem rithöfundur frá 1974. Ólafur birti ljóð á prenti áður en fyrsta skáldsaga hans, Milljón-prósent-menn, kom út 1978. Hann hefur sent frá sér skáldsögur, smásögur og skrifað barnabækur. Skáldsaga hans, Tröllakirkja var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunin 1992 og ensk þýðing hennar var einnig tilnefnd til IMPAC bókmenntaverðlaunanna 1997. Leikgerð hefur verið unnin upp úr sögunni sem frumsýnd var á stóra sviði Þjóðleikhússins 1996 og kvikmyndaréttur hennar hefur jafnframt verið seldur. Öxin og jörðin eftir Ólaf vann til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2003. Verk eftir Ólaf hafa verið þýdd á erlend mál, meðal annars barnabókin Fallegi flughvalurinn sem gefin var út í Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Færeyjum en hún var tilnefnd til Norrænu barnabókaverðlaunanna 1990. Ólafur hefur einnig þýtt skáldsögur og leikrit á íslensku.


Hilmar Jónsson
er leikstjóri og höfundur leikgerðar. Hann útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1990. Fyrst um sinn starfaði hann sem leikari við Þjóðleikhúsið en árið 1995 stofnaði hann ásamt öðrum Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóð og Háðvöru. Síðan þá hefur hann einkum sinnt leikstjórn og stjórnað Hafnarfjarðarleikhúsinu. Hann hefur nú leikstýrt hátt í þrjátíu leiksýningum, einkum hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu, en einnig hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Nemendaleikhúsinu og á Norðurlöndum. Í Hafnarfjarðarleikhúsinu leikstýrði Hilmar Himnaríki, Birtingi, Að eilífu, Síðasta bænum í dalnum, Sölku-ástarsögu, Vitleysingunum, Platanov (fyrir Nemendaleikhúsið), Englabörnunum og Grettissögu. Hann leikstýrði Stjórnleysingi ferst af slysförum, Kryddlegin hjörtu og Sól og Máni í Borgarleikhúsinu og Cyrano frá Bergerac, Pabbastrák og söngleiknum Edith Piaf við Þjóðleikhúsið.


Leikendur: Arnar Jónsson, Ingvar E. Sigurðsson, Hilmir Snær Guðnason, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Elva Ósk Ólafsdóttir, Erlingur Gíslason, Gunnar Eyjólfsson, Hjalti Rögnvaldsson, Jóhann Sigurðarson, Kjartan Guðjónsson, Kristján Franklín Magnússon, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Sólveig Arnarsdóttir, Þórhallur Sigurðsson, Þórunn Lárusdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson auk nokkurra barna.


Hjálmar H. Ragnarsson
 er höfundur tónlistar í verkinu. Hann stundaði tónlistarnám á Ísafirði og í Reykjavík og framhaldsnám í tónfræðum, tónvísindum og tónsmíðum í Bandaríkjunum og í Hollandi. Meistaraprófsritgerð hans fjallaði um Jón Leifs og tónlist hans. Hjálmar starfar sem tónskáld og hefur verið rektor Listaháskóla Íslands frá stofnun hans 1998. Þá hefur hann einnig starfað við kórstjórn, kennslu, ritstörf og fræðimennsku, og verið í forystu í félagsmálum listamanna, meðal annars sem formaður Tónskáldafélags Íslands 1988-92 og forseti Bandalags íslenskra listamanna 1991-98. Hann hefur samið fjölmörg kórverk og sönglög, einleiks- og kammerverk, verk fyrir sinfóníuhljómsveit, óperur og balletttónlist, kvikmyndatónlist og tónlist fyrir leikhús. Af uppfærslum í Þjóðleikhúsinu sem hann hefur samið tónlist fyrir má nefna Yermu, Marmara, Uppreisn á Ísafirði, Stóran og smáan, Pétur Gaut, 13. Krossferðina, Tröllakirkju og nú síðast Cyrano - skoplegan hetjuleik.


Sveinbjörg Þórhallsdóttir
sér um sviðshreyfingar. Hún útskrifaðist sem dansari frá Alvin Ailey American Dance Centre í New York árið 1995. Hún hefur starfað síðan sem dansari, danshöfundur og danskennari. Hún hefur dansað í fjölda leiksýninga, en einnig meðal annars með Dansleikhúsi með Ekka og í dansverkinu Úr viðjum. Sveinbjörg hefur sett upp fjölda danssýninga. Hún samdi meðal annars dansa fyrir Bugsy Malone og sumaróperuna Dido og Eneas og sá um sviðshreyfingar fyrir Beyglur með öllu í Iðnó og Lífið þrisvar sinnum í Þjóðleikhúsinu auk þess sem hún sá hér um dansa og sviðshreyfingar í Edith Piaf. Sveinbjörg var ein þriggja höfunda stuttmyndarinnar Örsögur úr Reykjavík. Meðal dansverka hennar eru Krossgötur, Nakin og SAGA sem flutt var í Þjóðleikhúsinu á vegum Tónskáldafélags Íslands, Listdansskóla Íslands og Listahátíðar í Reykjavík. Hún samdi Rokstelpuna og For I am... sem bæði voru sýnd í á Danshátið Reykjavíkur. Hún er ein fimm danshöfunda sem standa fyrir Danshátíðinni sem haldin er árlega í Reykjavík. Sveinbjörg er fastráðin sem kennari við nútímadeild Listdansskóla Íslands.


Björn Bergsteinsson
hannar lýsingu. Hann hefur starfað sem ljósamaður við Þjóðleikhúsið frá árinu 1982 að undanskildu einu leikári er hann starfaði við Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn. Hann hefur hannað lýsingu fyrir fjölda leiksýninga hér, en meðal þeirra nýlegustu eru Brúðuheimili, RENT, Krítarhringurinn í Kákasus, Hægan, Elektra, Kirsuberjagarðurinn, Blái hnötturinn, Hver er hræddur við Virginíu Woolf?, Cyrano frá Bergerac, Veislan, Með fullri reisn, Rauða spjaldið, Jón Gabríel Borkmann, Þetta er allt að koma og Edith Piaf. Björn hannaði ásamt Páli Ragnarssyni lýsingu við óperuna Hollendinginn fljúgandi sem sýnd var á Listahátíð 2002 á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Hann hefur hannað lýsingu margra sýninga Hafnarfjarðarleikhússins, Íslensku óperunnar og ýmissa leikhópa. Björn hlaut Grímuna, íslensku leiklistarverðlaunin, fyrir lýsingu í Veislunni.


Þórunn María Jónsdóttir
hannar búningana. Hún nam fag sitt í Frakklandi og Belgíu, þar sem hún bjó, nam og starfaði í 12 ár. Frá því hún flutti til Íslands árið 1996 hefur hún hannað búninga fyrir leikverk, óperur, danssýningar og kvikmyndir hjá flestum stærri leiklistarstofnunum landsins. Má þar nefna La Boheme í Íslensku óperunni, Blúndur og blásýru, Afaspil, Ástarsögu 3, Vorið vaknar, Völundarhús og Sól og Mána í Borgarleikhúsinu, þar sem hún hefur einnig hannað leikmyndir, og Trúðleik hjá Leikfélagi Íslands í Iðnó. Hún hefur hannað búninga í flestum sýningum Hafnarfjarðarleikhússins, Birtingi, Að eilífu, Síðasta bænum í dalnum, Sölku - Ástarsögu og nú síðast Englabörnum. Með Pars Pro Toto hefur hún hannað búninga fyrir Næturgalann og Æsu. Hún er höfundur búninga í kvikmyndunum Dansinum og Mávahlátri, og hlaut hún Edduverðlaunin fyrir búninga sína í Dansinum. Þórunn María gerði búninga í Cyrano frá Bergerac, í Dýrunum í Hálsaskógi og í Edith Piaf í Þjóðleikhúsinu.


Gretar Reynisson
er höfundur leikmyndar. Hann lauk myndlistarnámi frá Myndlistar- og handíðaskóla Íslands 1978 og var við framhaldsnám í Amsterdam 1978-79. Gretar hefur haldið um tuttugu einkasýningar, meðal annars í Listasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu, Galleríi i8, Listasafni ASÍ og víðar og tekið þátt í samsýningum, bæði hér heima og erlendis, meðal annars á Listasafni Íslands, Kjarvalsstöðum, í Nýlistasafninu og með Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík. Hann á verk í eigu safna, svo sem Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Háskólans og Nýlistasafnsins. Hann hóf feril sinn sem leikmyndahöfundur árið 1980, og hefur gert um fimmtíu leikmyndir síðan, meðal annars hjá Alþýðuleikhúsinu, við Óþelló og Draum á Jónsmessunótt hjá Nemendaleikhúsinu, við Draum á Jónsmessunótt, Gísl, Hamlet, Djöflaeyjuna, Ljós heimsins, sem hann fékk menningarverðlaun DV fyrir, og Lé konung hjá Leikfélagi Reykjavíkur og við Rhodymenia Palmata, Kirsuberjagarðinn og Makbeð hjá Frú Emilíu, auk þess sem hann gerði leikmynd við uppfærslu á Ofviðrinu hjá Riksteatern í Svíþjóð. Gretar hefur gert leikmyndir hér í Þjóðleikhúsinu við Milli skinns og hörunds, Bílaverkstæði Badda, Stóran og smáan, Rómeó og Júlíu, Gleðispilið, Stræti, Ferðalok, Tröllakirkju, Sem yður þóknast, Villiöndina, Meiri gauragang, Gamansama harmleikinn, Solveigu, Krítarhringinn í Kákasus, Antígónu, Önnu Kareninu, Halta Billa, en hann var tilnefndur til Grímuverðlaunanna fyrir þá leikmynd, og nú síðast Græna landið og Þetta er allt að koma.

Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is

 



Hefur þú komið á þessa síðu áður?

Já, mjög oft.
Já, nokkuð oft.
Já, nokkrum sinnum.
Já, örsjaldan
Nei, aldrei.