|
|
|
|
Forsíða > Leiklist í skólum > Fræðslupakkar og kennsluefni > Leitin að jólunum
|
| Leitin að jólunum |
Leitin að jólunum er barnaleikrit sem byggir á Jólasveinavísum Jóhannesar úr Kötlum við tónlist Árna Egilssonar.
Tveir skrítnir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum við aðalinngang Þjóðleikhússins. Þeir eru ekki alveg sammála um tilgang og tilurð jólanna. Annar er mikið jólabarn en hinn trúir engu varðandi jólahátíðina. Með þeim í för eru hljóðfæraleikarar og saman leiða þeir börnin með leik og söng um leikhúsið. Á Leikhúsloftinu sjá börnin hvernig jólin voru í gamla daga og með þátttöku barnanna tekst þeim að hrekja drungan og kuldann út úr baðstofunni. Gamlar óvættir koma til sögunnar en með dyggri aðstoð leiðsögumannanna komast gestir klakklaust niður í Þjóðleikhúskjallara þar sem annar leikþáttur bíður þeirra, um jólin í nútímanum.
Hér má finna jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum í heild sinni. http://jol.ismennt.is/jol96/ljod/jolasvjo.htm
|
|
|
|