Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Leiklist í skólum > Fræðslupakkar og kennsluefni > Klaufar og kóngsdætur > Frá höfundunum úr leikskrá
Frá höfundunum úr leikskrá

Hann mettaði barnssálina með fullorðinslegum hugsunum 


Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason skrifuðu handritið og sömdu auk þess sönglög og texta. Þeir hafa unnið saman að mörgum sýningum fyrir ýmis leikfélög, en þetta er í fyrsta sinn sem þeir semja fyrir Þjóðleikhúsið.

Þeir heilluðust allir af leikhúsi sem börn eða unglingar, léku allir saman með Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri, gengu seinna allir til liðs við leikfélagið Hugleik í Reykjavík, og áður en þeir vissu af voru þeir farnir að skrifa leikrit saman. Síðustu fjórtán ár hafa þeir samið allnokkur leikrit fyrir Hugleik og ýmis önnur áhuga- og atvinnuleikhús – annað hvort þrír saman, í samvinnu við fleiri eða hver í sínu lagi. Samhliða hafa þeir samið tónlist og söngtexta, bæði við leikrit sín og þar fyrir utan. Ármann og Þorgeir hafa einnig fengist talsvert við leikstjórn og Sævar lítillega.

En hvers vegna réðust þeir í að leikgera ævintýri H. C. Andersens? „Við kynntumst Ágústu leikstjóra fyrir nokkrum árum og sumir okkar tóku þátt í að búa til sýningu með henni og Leikfélagi Kópavogs upp úr Grimms-ævintýrum. Við höfðum rætt við hana um að gera H.C. Andersen sýningu og þegar svo heppilega vildi til að Þjóðleikhúsið bað hana um slíkt hið sama fékk hún okkur með í verkefnið. Við heilluðumst auðvitað af sagnaheimi Andersens sem börn – eins og reyndar öll börn hafa gert í tæplega 200 ár – og erum eiginlega enn heillaðri af honum núna en nokkru sinni fyrr. Einhvern tíma var líka sagt að hann mettaði barnssálina með fullorðinslegum hugsunum og hann kallaði fram barnið í sálum hinna fullorðnu. Þetta fundum við strax og við fórum að velja úr tæplega 170 sögum hans. Þrátt fyrir frelsið sem við leyfðum okkur við að hnika til hlutum í sögum hans vildum við samt vera trúir kjarnanum í ævintýrunum eins og hægt væri, ekki fegra og bæta eða láta enda vel það sem hann lætur enda illa, eins og stundum er gert í teiknimyndum. Eftir sameiginlega matreiðslu okkar, leikstjórans og leikhópsins á þessum kjarna, stöndum við vonandi upp með ævintýralega leikhúsveislu fyrir alla aldurshópa og vonum að heiðursgesturinn H.C. Andersen setjist brosandi til borðs með okkur."

Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is

 



Hefur þú komið á þessa síðu áður?

Já, mjög oft.
Já, nokkuð oft.
Já, nokkrum sinnum.
Já, örsjaldan
Nei, aldrei.