Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Leiklist í skólum > Fræðslupakkar og kennsluefni > Handbók leikhúsáhorfandans
Handbók leikhúsáhorfandans

Fræðsludeild Þjóðleikhússins - Apríl 2003

Eftirfarandi listi er hugsaður sem hugmyndabanki fyrir kennara sem vilja nýta leikhúsferð sem hvata að frjóum og lærdómsríkum umræðum með nemendum sínum. 

 

Leikhúsferð - umræðupunktar:

 

Væntingarnar - fyrir sýningu

Ræðið endilega og kortleggið væntingar nemenda áður en farið er í leikhúsferðina. Þetta getur stutt við umræðurnar eftirá, og verið fræðandi um samhengi væntinga og upplifunar.

 

·          Hvernig hefur leiksýningin verið auglýst og hvaða væntingar gerið þið ykkur útfrá þeim? Hvað geta þær ljósmyndir eða atriði sem þau hafa séð leikin sagt ykkur um sýninguna?

·          Þekkið þið leikara eða aðra aðstandendur sýningarinnar? Hvað hafið þið séð þessa listamenn gera áður, og hvernig líkaði ykkur það? Er til dæmis uppáhalds leikari ykkar í sýningunni? ?Eða einhver sem þið þekkið?

·          Hafið þið heyrt eitthvað um sýninguna, gagnrýni eða viðhorf annarra, og hvaða áhrif hefur það á væntingar ykkar?

·          Þekkið þið leikhúsið, eða eruð þið að fara þangað í fyrsta sinn? Við hverju búist þið sem ekki hafið komið þangað áður?

·          Hver, að ykkar mati, er markhópur sýningarinnar? Þ.e. fyrir hverja teljið að sýningin sé hugsuð?

·          Hafið þið lesið leikritið eða hafið þið jafnvel séð það í annarri (eða sömu) uppfærslu?

 

Ytra form verksins

·          Hvernig er verkið byggt upp? Er það ein samhangandi heild, eða í mörgum brotum?

·          Hvernig eru atriðin í leikritinu tengd saman? Ganga þær tengingar upp?

 

Leikmyndahönnunin

·          Var leikmyndin á skjön við eða í samræmi við þessa tegund verks? (T.d. farsi / barnaleikrit / klassískt verk?)

·          Hvers eðlis var leikmyndin? Var hún stílfærð eða raunsæisleg?

·          Hvernig var leikmyndin í rýminu? Fyrirferðarmikil? Lítil? Fyllti hún út í rýmið eða loftaði um hana?

·          Hvað getið þið sagt um efnisnotkun, liti og form í leikmyndinni?

·          Var fleiri en ein leikmynd? Hvernig var samræmi milli þessara mynda? Hæfðu þær sýningunni?

·          Hvernig var leikmyndin notuð af leikurunum? Var hún t.d. bara í bakgrunni, eða notuðu þeir hana mikið (til að sitja, standa eða liggja á, t.d.)?

·          Hvað í leikmyndinni fangaði athygli ykkar, annað hvort á jákvæðan eða neikvæðan hátt? (Hvað fannst ykkur gott eða flott? og hvað ekki? Hvers vegna / ekki?)

 

Lýsingin

·          Hvernig notaði ljósahönnuðurinn liti og ljós til þess að skapa andrúmsloft í sýningunni?

·          Var lýsingin hefðbundin miðað við tegund verksins (barnaleikrit / gamanleikrit / söngleikur?) ?

·          Hentaði lýsingin sviðsmyndinni? (Naut sviðsmyndin sín í ljósunum?)

·          Var ljós og skuggi notað á áberandi hátt á einhverjum stað í sýningunni?

·          Voru ljósin notuð til að sýna muninn á árstíðum og tíma dags í sýningunni?

·          Hvernig fannst ykkur lýsingin passa við annað í sýningunni?

·          Hvað í lýsingunni fangaði athygli ykkar, á jákvæðan eða neikvæðan hátt?

  

Leikur

·          Hvernig var leikstíllinn? Léku leikararnir eðlilega, stílfært eða mjög alvarlega, t.d.? Var leikstíllinn skýr? Héldu leikararnir sig við hann allt leikritið?

·          Sköpuðu leikararnir persónur sem voru eins og alvöru fólk, eða voru þær dæmigerðar erkitýpur (steríótýpur)? Var mamman til dæmis dæmigerð mamma, og amman dæmigerð amma?

·          Hvaða áhrif haldið þið að aldur og reynsla leikara hafi á persónusköpun þeirra? (Hvernig eru eldri og reyndari leikararnir t.d. samanborið við ungu leikarana í sýningunni?)

·          Gerið þið meiri væntingar til þeirra leikara sem eru frægir / sem þið þekkið / sem þið hafið séð leika áður?

·          Pössuðu allir leikararnir inn í heildarmynd verksins, eða voru einhverjir sem skáru sig úr á einhvern hátt?

·          Hvernig beittu leikararnir röddinni? Notuðu þeir sína eðlilegu rödd, eða breyttu þeir henni? Heyrðist vel til allra? Var framsögnin skýr hjá öllum?

·          Hvernig beittu leikararnir líkamanum? Voru hreyfingar allra leikaranna í samræmi við persónur þeirra og stíl sýningarinnar?

·          Fannst ykkur allir leikararnir vera þátttakendur í því að segja söguna á sviðinu? Fannst ykkur leikararnir vinna vel saman á sviðinu?

·          Tókuð þið eftir því hvort leikararnir tóku tillit til viðbragða áhorfenda?

·          Hvað fannst ykkur sérstaklega gott við leikinn almennt, og hvað fannst ykkur þurfa að gagnrýna á neikvæðan hátt?

  

Búningar, förðun og hárgreiðsla

·          Hjálpuðu búningarnir til við að skapa sérstakt andrúmsloft í sýningunni?

·          Hvernig var litanotkunin í búningunum? Var samræmi í litanotkun? Voru einhverjir litir einkennandi fyrir sumar persónur eða allar? Voru litir notaðir á táknrænan hátt í búningunum?

·          Hvað segir það ykkur um hverja persónu hvernig hún klæðist?

·          Var sameiginlegur stíll á öllum búningunum, eða voru þeir viljandi látnir vera í ósamræmi?

·          Hvernig hjálpaði búningurinn leikaranum við að túlka persónuna?

·          Voru mikil búningaskipti? Voru  búningaskiptin fyrst og fremst til að sýna tíma líða í verkinu?

·          Finnst ykkur hárgreiðsla leikaranna og förðun hafa verið vel heppnuð?

·          Hvað í búningum og útliti leikaranna finnst ykkur hafa heppnast vel, og hvað ekki?

 

Tónlist og leikhljóð

·          Passaði tónlistin og leikhljóðin vel við sýninguna?

·          Hentaði tónlistin og leikhljóðin, og styrkur þeirra, þessum sal?

·          Studdi tónlistin / leikhljóðin leikarana í því að túlka persónur sínar á einhvern hátt?

·          Var tónlistin og leikhljóðin notuð til þess að gefa til kynna tíma eða staðsetningu atriða?

·          Studdi hljóðmyndin við skiptingar milli atriða?

·          Var ákveðið stef í sýningunni, sem var endurtekið?

·          Hvað í hljóðmyndinni fannst þér heppnast best / verst?

Leikmunir

Leikmunir eru allir lauslegir munir sem notaðir eru í sýningu. Færanleg húsgögn, og allir aðrir minni hlutir í sýningunni, hvort sem þeir eru handfjatlaðir eða eru bara til skrauts.

 

·          Var mikið eða lítið af leikmunum í sýningunni?

·          Var samræmt útlit á leikmunum í sýningunni, eða voru þeir úr ýmsum áttum?

·          Voru einhverjir leikmunir notaðir eingöngu til skrauts? Hvað sögðu þeir okkur þá? Hverju bættu þeir við?

·          Voru einhverjir leikmunir sem vöktu athygli ykkar og hvers vegna?

·          Haldið þið að þurft hafi að búa einhverja leikmuni til sérstaklega fyrir þessa sýningu, eða væri hægt að kaupa alla þessa leikmuni út í búð?

·          Fannst ykkur leikmunir vera notaðir á áhugaverðan hátt í sýningunni, eða var einhverjum leikmunum ofaukið?

 

Tónlist og leikhljóð

·          Passaði tónlistin og leikhljóðin vel við sýninguna?

·          Hentaði tónlistin og leikhljóðin, og styrkur þeirra, þessum sal?

·          Studdi tónlistin / leikhljóðin leikarana í því að túlka persónur sínar á einhvern hátt?

·          Var tónlistin og leikhljóðin notuð til þess að gefa til kynna tíma eða staðsetningu atriða?

·          Studdi hljóðmyndin við skiptingar milli atriða?

·          Var ákveðið stef í sýningunni, sem var endurtekið?

·          Hvað í hljóðmyndinni fannst þér heppnast best / verst?

 

Leikstjórn

Hlutverk leikstjórans er að hafa yfirumsjón með öllum ofantöldum þáttum. Það eru hans ákvarðanir sem hafa stýrt gjörðum annarra listrænna stjórnenda. Leikmyndahönnuður gerir ekki leikmynd úr pappír og plasti, ef leikstjórinn vill leikmynd úr steini, t.d.  Heildaryfirbragð sýningarinnar, hreyfingar leikaranna, val á tónlist og útliti sýningarinnar fer allt í gegnum leikstjórann. Hann ákveður hvernig atriðin eru tengd saman, hvernig leikurum er raðað upp á sviðinu, í hvaða stíl er leikið og hvaða merking er lögð í textann. Allt í náinni samvinnu við aðra listamenn sýningarinnar að sjálfsögðu.

 

·          Lagði leikstjórinn meiri áherslu á hið sjónræna (það sem sést) en textann (það sem er sagt), eða hafði það jafnt vægi?

·          Hvernig var heildaryfirbragð sýningarinnar?

·          Hvernig var samband leikenda og áhorfenda ákvarðað af hálfu leikstjórans? Léku leikararnir alltaf eins og það væru engir áhorfendur, eða var samband þarna á milli?

·          Hvernig tókst leikstjóranum upp í því að skapa skemmtiegt eða áhrifamikið andrúmsloft í sýningunni?

·          Hvernig var flæðið í sýningunni? Rann hún átakalaust milli atriða, eða var viljandi stoppað á milli?

 

Áhorfendur

·          Hvernig fólk var á sýningunni? Á hvaða aldri var það? Var jafnt hlutfall kynja í salnum?

·          Haldið þið að sýningin hafi haldið áhuga áhorfenda?

·          Haldið þið að væntingar leikhúsáhorfenda hafi verið uppfylltar? Fékk sýningin áhorfendur til að hlæja, gráta eða verða reiðir?

 

Almennar umræður um verkið eftirá

·          Hvað líkaði ykkur sérstaklega við uppsetninguna? Hvað fannst ykkur skemmtilegast eða mest spennandi?

·          Var eitthvað sem hreyfði við ykkur í sýningunni ? hryggði eða hræddi ykkur? Hvenær voru sterkustu augnablik sýningarinnar? Leiddist ykkur einhvern tíma? Hvenær?

·          Var klappað vel fyrir sýningunni í lokin? Finnst ykkur sýningin hafa átt meira eða minna klapp skilið?

·          Hvað lifir skýrast í minningunni um sýninguna eftirá? Af hverju?

·          Minnti leiksýningin ykkur á einhver önnur leikrit sem þið hafið séð, sjónvarpsmyndir eða kvikmyndir? Að hvaða leyti? Að hvaða leyti ekki?

 

Umræðupunktarnir eru unnir útfrá á lista  Dan Urian (Hornbrook, David: On the Subject of Drama, Routledge, 1998). Staðfært, stytt og þýtt af Vigdísi Jakobsdóttur.

Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is

 



Hefur þú komið á þessa síðu áður?

Já, mjög oft.
Já, nokkuð oft.
Já, nokkrum sinnum.
Já, örsjaldan
Nei, aldrei.