Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Leiklist í skólum > Fræðslupakkar og kennsluefni > Fagnaður > Örstutt um Pinter
Örstutt um Pinter
Harold Pinter er af mörgum talinn eitt frumlegasta og merkasta leikskáld Breta á síðari hluta tuttugustu aldar. Pinter hefur skrifað um þrjá tugi leikrita, en hann hefur jafnframt haft mikil áhrif á leiklist í Bretlandi sem leikstjóri og höfundur fjölda útvarps- og sjónvarpsleikrita. hann hefur einnig skrifað nokkur kvikmyndahandrit. Á síðari árum hefur Pinter látið mikið til síns taka á opinberum vettvangi í mannréttindabaráttu. Hörð gagnrýni hans á ríkisstjórnir Bretlands og Bandaríkjanna vegna stefnu þeirra í alþjóðastjórnmálum hefur meðal annars vakið mikla athygli. Mörg leikrita Pinters hafa verið sett upp á Íslandi, meðal annars Húsvörðurinn, Liðin tíð, Einskonar Alaska, Kveðjuskál, Heimkomum, Elskhuginn, Vörulyftan og Svik. Harold Pinter voru nýlega veitt evrópsku leiklistarverðlaunin, virtustu leiklistarverðlaun álfunnar. Pinter hlaut Nóbelsverðlaun fyrir bókmenntir árið 2005.

Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is

 



Hefur þú komið á þessa síðu áður?

Já, mjög oft.
Já, nokkuð oft.
Já, nokkrum sinnum.
Já, örsjaldan
Nei, aldrei.