Progression in Secondary Drama
Andy Kempe, Marigold Ashwell, Heinemann Educational Secondary Division - 15 August, 2000
Þessi ágæta bók fjallar á altækan hátt um leiklistarkennslu fyrir eldri bekki grunnskóla. Eins og titill bókarinnar gefur til kynna, er höfuðáhersla lögð á spurninguna um hvernig tryggja megi framhald í leiklistarkennslu. Í þessu samhengi er m.a. fjallað um námskrár, markmiðssetningu og námsmat, og farið ítarlega í einstaka þætti leiklistarkennslu.
Beginning Drama 11-14
Jonothan Neelands, David Fulton Publishers - 21 May, 1998
Lítil bók með mikið af dæmum og upplýsingum um notkun leiklistar í skólastofunni með 11-14 ára börnum.
Beginning Drama 4-11
Joe Winston, Miles Tandy, David Fulton Publishers - 26 January, 2001
Lítil bók sem ætlað er að styðja við bakið á kennurum sem kenna yngri börnum (4-11 ára) leiklist, eða nota leiklist í kennslu.
On the Subject of Drama
David Hornbrook (ritstjóri), Stephen Daldry, RoutledgeFalmer Paperback - 30 April, 1998
Safn frábærra greina sem taka á grundvallarspurningum varðandi framtíð og þróun leiklistarkennslu í skólum.
Starting Drama Teaching
Michael Fleming; David Fulton Publishers, 1994
Tilvonandi og nýir leiklistarkennarar ættu að geta haft gagn af þessari bók. Hún er ekki stórt safn leikja og æfinga, en fjallar á mjög greinargóðan hátt um ýmis sértæk vandamál sem fylgja leiklistarkennslu. Höfundi er í mun að forða tilvonandi leiklistarkennurum frá því að falla í stærstu gryfjurnar s.s. að hafa ekki skýr markmið eða kennsluaðferð til að byggja á. Hann fjallar um atriði eins og áhugaleysi og neikvæðni nemenda, hvernig sé best að stýra para-vinnu og hópvinnu, þróun og tilbreytingu í kennslunni og fleira mjög svo gagnlegt.
Drama and Traditional story for the Early Years
Toye, Nigel & Prendiville, Francis; Routledge, London og New York, 2000
Heppileg fyrir leikskólastig og yngsta stig grunnskóla. Bók sem tekur fyrir ákveðna aðferð í leiklistarkennslu fyrir yngstu börnin þar sem kennari bregður sér í hlutverk (Teacher in Role ? TiR). Notaðar eru klassískar sögur og ævintýri sem börnin þekkja. Aðferðin er frábær til siðferðis-kennslu. Aðferðinni er vel lýst, og m.a. eru tekin nokkur ítarleg dæmi um hvernig má nýta sér hana. Ath. kennari þarf ekki að vera frábær leikari til þess að nýta sér TiR. Flestir góðir kennarar og uppalendur fara í hlutverk við hin ýmsu tækifæri, án þess að hugsa sig um. Þessi bók gefur þessari aðferð eða kennslutæki ákveðinn farveg, auk þess sem hún getur fætt af sér feyki-góðar litlar leiksýningar með siðferðislegum boðskap.
Supporting Drama and Imaginative Play in the Early Years
Hendy, Lesley & Toon, Lucy; Open University Press, Buckingham og Philadelphíu, 2001.
Þessari bók er ætlað að gefa innsýn í bæði kennslufræði og kennslu leiklistar fyrir yngstu börnin (4-7 ára). Rætt er um tengsl hlutverkaleiks/þykjustuleiks við þroska barns og sjálfsmyndar þess, og hvernig hægt er að örva og efla þetta nám.
Drama Structures
O'Neill, Cecily & Lambert, Alan; Hutchinson Education, London, 1982 (Heinemann, Portsmouth, 1991 -útg. í USA)
Með inngangi eftir Gavin Bolton. Bók sem kynnir leiklist sem kennsluaðferð. Mikið af dæmum og hugmyndum um þemu. Í raun er ekki um bók í leiklistarkennslu að ræða, heldur bók sem kynnir leiðir til þess að nota aðferðir leiklistarinnar þverfaglega.
Teaching Shakespeare -into the Twenty-First Century
Salomone, Ronald E. & Davis, James E. (ritstj.), Ohio University Press, Athens (Ohio), 1997.
Kaflarnir í bókinni eru skrifaðir af 33 kennurum á þremur mismunandi skólastigum í Bandaríkjunum (middle school, highschool og college). Kennararnir kynna ýmsar aðferðir sem hafa reynst þeim vel við að kenna Shakespeare. Áherslurnar eru eins mismunandi og kennararnir eru margir.
Theater Games for the Classroom - A Teacher's Handbook
Spolin, Viola, Northwestern University Press, Evanston, Illinois, 1986
Viola Spolin er þekkt fyrir spuna-leiki sína. Hér hefur hún tekið saman í aðgengilega bók leiki sem henta í kennslu. Leikirnir eru settir upp skv. ákveðnu kerfi og eru mjög aðgengilegir. Í bókinni er líka viðauki með ítarlegum lista yfir bækur sem henta í kennslu.