Skipulagsstjóri Þjóðleikhússins hefur margt á sinni könnu. Hans hlutverk er að hafa yfirsýn yfir og samræma starfið í húsinu. Hann skipuleggur æfingar og aðra undirbúningsvinnu í samráði við leikstjóra og leikmyndahöfunda og fylgist með framvindu hvers verkefnis og því að áætlanir standist. Hann er því einskonar framleiðslustjóri nýrra verkefna. Það er hlutverk skipulagsstjóra að tryggja að engir árekstrar verði. Oft eru mörg leikverk í æfingu á sama tíma og leikarar oft með hlutverk í fleiri en einu verkefni í einu. Það krefst því oft mikillar útsjónarsemi við að samræma og sætta ólíkar þarfir við undirbúninginn. Þá aðstoðar skipulagsstjóri þjóðleikhússtjóra og framkvæmdastjóra við að búa til sýningaráætlanir, þ.e. á hvaða dögum hvert leikrit er sýnt. Til dæmis eru leikarar oft í fleiri en einni sýningu í einu, og þá þarf að að passa upp á að sýning sem leikari leikur í á Stóra sviðinu, sé ekki sett á sama kvöld og sýning sem hann leikur í á Smíðaverkstæðinu! (Þó leikarar Þjóðleikhússins séu hæfileikaríkir, er þeim ekki gefið að vera á tveimur stöðum í einu.) Skipulagsstjóri stýrir vikulegum skipulagsfundum. Þar sitja auk deildarstjóra, þjóðleikhússtjóri, framkvæmdastjóri leikhússins og fulltrúar þeirra sýninga sem eru komnar á síðari stig í æfingum. Þar er farið yfir æfinga- og sýningaráætlanir hverrar viku og breytingar gerðar eftir þörfum. Deildarstjórar segja frá stöðu mála varðandi einstaka sýningar og möguleg vandamál eru rædd og leitað leiða til úrlausna. Skipulagsstjóri skipuleggur einnig leikferðir og gestaleiki. Það er mikilvægt fyrir skipulagsstjóra að vera vel að sér um allt það starf sem fer fram í leikhúsi, og hafa skilning á listgreininni, til þess að geta vegið það á móti hagsýnissjónarmiðum þegar kemur að stórum ákvörðunum. Hann þarf að geta átt góð samskipti við annað fólk - og vera skipulagður, að sjálfsögðu! Skipulagsstjóri Þjóðleikhússins í dag er Sigmundur Örn Arngrímsson. Hann er leikaramenntaður og með mikla og víðtæka reynslu úr leikhúsi.
|