Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Kíktu baksviðs > Störfin á bakvið tjöldin > Markaðsstjóri
Markaðsstjóri

 

Ábyrgðasvið:

Markaðsstjóri ber ábyrgð í starfi sínu gagnvart Þjóðleikhússtjóra.

Markaðsstjóri hefur yfirumsjón með markaðs og kynningarstarfi þjóðleikhússins og ber ábyrgð á að upplýsingar um starfsemi þess séu aðgengilegar og sýnilegar öllum almenningi eftir því sem við verður komið og fjármagn leyfir.

 

Markaðsstjóri hefur einnig yfirumsjón með allri þjónustu við gesti þjóðleikhússins, hvort sem þeir sækja sýningar eða aðra viðburði á og vegum þess eða í húsnæði þess.

 

Undir markaðsstjóra heyra kynningarstjóri, upplýsingafulltrúi, miðasölustjóri og ljósmyndari hússins auk veitingastjóra í Kjallara og vaktstjóra í gestamóttöku.

 

Verksvið:

Markaðsstjóri skal hafa frumkvæði að stefnumörkun í markaðs og kynningarmálum almennt og vegna einstaka sýninga og viðburða. Hann skal leita samráðs við þjóðleikhússtjóra og listrænan rjágjafa um heildarstefnumörkun, en samráðs við aðstandendur einstaka sýninga og viðburða um  markaðssetningar þeirra og kynningu. Hann skal áætla kostnað vegna kynningarmála í samráði við fjármáladeild, leita hagstæðar tilboða í verk og  leggja fram hugmyndir sínar á fjármálafundum.

Þegar áæltanir hafa verið samþykktar er markaðsstjóri tengiliður leikhússins við birgja, hönnuði og verktaka í auglýsingagerð, markaðssetningu og þjónustu og fylgir því eftir að verkskil séu í samræmi við áætlanir. 

 

Markaðsstjóri er tengiliður leikhússins við fjölmiðla, félagasamtök og einstaklinga sem þurfa að sækja kynningarefni eða upplýsingar til Þjóðleikhússins, eða vilja koma upplýsingum á framfæri og skal hann leysa úr málum þeirra eða vísa þeim áfram til annarra, eftir því sem þurfa þykir og aðstæður leyfa.

 

Markaðsstjóri útbýr fréttatilkynningarog hefur yfirumsjón með allri útgáfu kynningarefnis á prenti og í fjölmiðlum í samráði við hlutaðeigandi aðila og  málfarsráðunaut hússins.

 

Markaðsstjóri uppfærir reglulega heimasíðu leikhússins og sér til þess að hún sé upplýsandi og gefi sem gleggsta mynd af starfseminni á hverjum tíma.

 

 

 

 

 

 

 

 

Björg Björnsdóttir er Markaðsstjóri Þjóðleikhússins í dag. Hún hefur gegnt því starfi frá árinu 2005 en var áður undir starfsheitinu kynningarstjóri.

Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is

 



Hefur þú komið á þessa síðu áður?

Já, mjög oft.
Já, nokkuð oft.
Já, nokkrum sinnum.
Já, örsjaldan
Nei, aldrei.