Hér er verið að kynna módel af leikmynd.
Leikmyndahönnuður sér um ytri umgerð leikrits. Hann hannar veggi, gólf, og lausa leikmuni á sviðinu og ákveður útlit sýningarinnar í samvinnu við leikstjóra hverrar sýningar fyrir sig. Hlutverk leikyndahönnuðar er mjög mikilvægt. Hann þarf að hafa í huga, auk heildarmyndar (koncepts), hversu margir leikarar eru á sviðinu, hvaða pláss þarf, hvað virkar fyrir hverja senu og fer það saman við næstu. Starfið krefst mikillar útsjónarsemi og þekkingu á leikhúsvinnu. Lærðir myndlistarmenn hafi í auknum mæli starfað sem leikmyndahönnuðir.
|