Leikmunadeild

Leikmunadeild Þjóðleikhússins sér um að útvega, hanna og útbúa ef þarf, allt lauslegt sem er á sviðinu, hvort sem það er nú vasaklútur eða vaskafat, bók eða borðstofuskápur! Leikmunaverðir er formlegi titill þeirra sem starfa við leikmunadeildina, en í daglegu tali í leikhúsinu ganga þau þó undir nafninu propsarar. (Props er slangur úr ensku og er stytting á orðinu properties, eða leikmunir.)
Starfsfólk leikmunadeildar fylgist með æfingaferlinu frá fyrsta degi. Fundað er með leikmyndahöfundi og leikstjóra snemma á ferlinu til þess að fara yfir hvaða leikmuna uppsetningin krefst. Þá er búinn til leikmunalisti. Oft breytast þessar kröfur og þróast eftir því sem líður á æfingaferlið, og tekur starfsfólk leikmunadeildarinnar virkan þátt í þeirri hugmyndavinnu. Oft tekur mikinn tíma að finna eða útbúa nákvæmlega réttu leikmunina, og sér leikmunadeildin þá til þess að á æfingum séu til taks hlutir sem eru nokkurn veginn réttir. Þetta er kallað æfingaprops. Smátt og smátt fara svo réttu leikmunirnir að tínast inn. Mjög oft þarf að prófa fleiri en einn hlut, og leikmunadeildin þarf oft að kyngja því að það sem hefur kostað þau mikla fyrirhöfn að útbúa eða útvega, er annaðhvort sleppt úr sýningunni eða eitthvað annað notað í staðinn. Æfingatímabilið er þróunarferli og það er ómögulegt að vita nákvæmlega hvers sýningin krefst áður en æfingar hefjast. Þess vegna mæðir oft mikið á deild eins og leikmunadeildinni sem þarf að svara kalli leikstjóra, hönnuða og leikara oft með mjög stuttum fyrirvara.
Sýningar
Á æfingum og sýningum bera leikmunaverðir ábyrgð á því að leikmunir séu allir á sínum stað og tilbúnir til notkunar. Leikmunaverðir eru alltaf til taks á sýningum. Þeir sjá um allt lauslegt í skiptingum, en sviðsmenn sjá um leikmyndina sjálfa. Leikmunaverðirnir eru alltaf svartklæddir til þess að beri sem minnst á þeim í rökkrinu baksviðs og í skiptingunum. Þeir þurfa oft að vinna í algjöru myrkri, og þannig er þessi brandari til kominn:
Spurning: Hversu marga propsara þarf til þess að skipta um ljósaperu?
Svar: Síðan hvenær þurfa propsarar ljós?
Rúgbrauðskonfekt
Ef matur er í sýningunni sér leikmunadeildin um innkaup á honum og tryggir að hann sé alltaf ferskur. Ef maturinn er ekki borðaður er útbúinn matur úr frauðplasti, svampi eða öðru, svo ekki þurfi að skipta út á hverri sýningu. Og þó leikari eigi að vera að borða eða drekka eitthvað ákveðið, er ekki þar með sagt að það sé nákvæmlega sá matur eða drykkur sem er í boði! Sólberjasaft kemur í stað rauðvíns, kalt te í stað koníaks, hrísmjólk í stað soðningar, rúgbrauð í stað konfekts, ópal í stað munntóbaks o.s.frv.
Leikmunageymsla
Geymsluaðstaða er lítil sem engin í leikhúsbyggingunni sjálfri, og því er skemma leigð undir leikmuni úti í bæ, sem leikmunadeildin ber ábyrgð á. Nokkuð er um að áhugahópar og önnur leikhús sækist eftir að fá lánaða eða leigða leikmuni, og starfsfólk leikmunadeildarinnar reynir að sinna því eins og mögulegt er.

Leikmunurinn sem óx of hratt!
Ef dýr eru notuð í leiksýningu, hvort sem það er gullfiskur, dúfur eða kettlingur, eru þau á ábyrgð leikmunadeildar. Þegar Bróðir minn Ljónshjarta var á fjölunum fyrir nokkrum árum, þurfti leikmunadeildin til dæmis að hafa á fóðrum nokkrar dúfur. Í leiksýningunni um Jón Odd og Jón Bjarna þurfti að nota lifandi kettling, sem leikmunadeildin hafði á sínum snærum. Ágætlega fór um kettlinginn á vinnusvæði leikmunadeildarinnar, enda fékk hann næga athygli. Sýningin fékk góða aðsókn og var sýnd í eitt og hálft ár. Eina vandamálið var að kettlingar vaxa og hætta að vera kettlingar eftir nokkra mánuði, þannig að það varð reglulega að yngja köttinn upp. Þannig varð það heilmikill höfuðverkur leikmunadeildarinnar að finna nokkurn veginn eins útlítandi kettling á nokkurrra mánaða fresti. Allt í allt urðu það sex kettlingar sem fengu að njóta sín á Stóra sviðinu þessa tvo vetur sem sýningin gekk.
Við leikmunadeild Þjóðleikhússins eru fimm fastráðnir starfsmenn, þar af einn formlistamaður, Lýður Sigurðsson. Deildinni veita forstöðu Trygve Eliasson og Rakel Stefánsdóttir.