Hlutverk hljóðdeildarinnar:
1. Að taka upp og búa til leikhljóð fyrir sýningar og ýmislegt annað því tengt s.s. upptökur á tónlist og töluðu máli.
2. Umsjón með allri hljóðmynd á leiksýningum. Spila leikhljóð, sjá um uppmögnun á tali, söng og tónlist.
3. Ýmis tæknileg mál önnur falla undir starfssvið hljóðdeildar. Viðhald tækja, samskiptakerfi innan hússins, sjónvarpskerfi hússins, myndbandsupptökur og margt fleira.
4. Síðast en ekki síst tekur hljóðdeildin, eins og aðrar deildir hússins virkan þátt í þeirri listrænu sköpun er fer fram við hverja leiksýningu.
Hljóðdeild Þjóðleikhússins er skipuð þrem fastráðnum starfsmönnum og tveim lausráðnum.
Sigurður Bjóla Garðarsson, deildarstjóri hljóðdeildar:
Við í hljóðdeildinni höfum reynt að hafa það verklag, að einn og sami maður fylgi hverri sýningu frá vöggu til grafar ef svo má að orði kveða. Hann situr því á æfingum kannski allt upp í hálfan annan mánuð og stýrir svo hljóði á sýningunum sjálfum allt upp í hálft annað ár. Oft eru sýningar það flóknar að það þarf tvo hljóðmenn eða jafnvel þrjá til að koma öllu heim og saman. Í söngleikjum þeim sem hér hafa verið sýndir undanfarið sbr. "Með fullri reisn" höfum við verið fjórir og þá hver og einn með mjög afmarkað starfssvið.
Lengd æfingatímabils er nokkuð misjöfn eftir verkefnum og einnig er nokkuð mismunandi hvenær við komum fyrst að verkinu. Stundum hefst vinna við hljóð ekki að ráði fyrr en hálfum mánuði þrem vikum fyrir frumsýningu. Í öðrum tilvikum erum við með nánast frá byrjun. Þetta fer nokkuð eftir því hvernig leikstjórar vinna. Sem dæmi má nefna að við vorum með nánast frá fyrstu æfingu á Ríkarði þriðja.
Hvað þarf góður hljóðmaður að hafa til að bera?
Gott er að hafa einhverja nasasjón af tónlist og upptökum á tónlist. Innsýn í tæknihliðina er nauðsynleg, þannig að nám á borð við rafeindavirkjun er gott veganesti. Góð tölvuþekking er einnig æskileg. Annars er góð reynsla gullri betri, og bakgrunnur hljóðmanna er mjög mismunandi.
Hvaðan koma leikhljóðin?
Leikhljóð er hægt að fá í hinum ýmsu söfnum og þá yfirleitt á geisladiskum. Oftar en ekki verðum við á hljóðdeildinni þó að búa leikhljóðin til eða taka þau upp í hverju tilviki fyrir sig. Afmælisveisla á Íslandi hljómar allt öðruvísi en afmælisveisla í Bandaríkjunum, og lóan syngur öðruvísi í Flóanum heldur en við Loch Ness í Skotlandi. Stundum eru leikhljóð þess eðlis að fara þarf allt að aðra leið að markinu heldur en beinast liggur við. Þá erum við kannski frekar að tala um áhrifahljóð en raunhljóð og ætla ég nú að segja ykkur litla sögu um eitt slíkt:
Svo bar við árið 1998 að ákveðið var að setja á svið Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxnes. Kjartan Ragnarsson rithöfundur og leikstjóri var fenginn til að búa til nýja leikgerð eftir sögunni og leikstýra verkinu. Þrátt fyrir einlæga viðleitni reyndist ómögulegt að gera efninu viðeigandi skil á minna en 5 klst, sem skipt var upp í tvær leiksýningar. Atli Heimir Sveinsson var fenginn til að skreyta verkið tónum og tókst vel að vonum. Þar var voru m.a. mörg sönglög og alls konar áhrifatónlist og allt flutt af tónlistarmönnum á sviðinu. Hljóðdeildin hafði eins og von var mikinn viðbúnað af þessu tilefni og skyldi nú öllu til tjaldað. Bjuggust menn við að allan söng og hljóðfæraslátt þyrfti að magna upp og eins þótti mönnum einsýnt að leik- og áhrifahljóð yrðu mörg og viðamikil. Brá þó svo við að eftir því sem æfingum fjölgaði minnkaði hlutur hljóðdeildar sífellt. Ákveðið var að sleppa öllum hljóðnemum, hljómsveitin spilaði órafmagnað, og leikhljóðum fór ört fækkandi, allt þar til við sátum uppi með eitt stutt en þó mjög áhrifaríkt leikhljóð. Eitt einasta leikhljóð í þessari tvöföldu sýningu, og mætti hljóðmaður sérstaklega á hverja sýningu til þess að spila það. Þarna er komið sögu er Bjartur afræður að skera kú sína með hræðilegum afleiðingum fyrir fjölskylduna. Í leiksýningunni Þegar kýrin er skorin, er klippt á streng kontrabassa á sviðinu, og til þess að þetta dramatíska augnablik nyti sín, var þetta hljóð spilað.
Hlustaðu á leikhljóðið í Sjálfstæðu fólki!
ATH. Hlustaðu vandlega, því annars gæti það farið framhjá þér!
|