Hárkollu- og förðunardeild
Á hárkollu- og förðunardeild Þjóðleikhússins starfa þrír fastráðnir gervahönnuðir auk þess sem lausráðnir starfsmenn starfa á æfingum og sýningum. Að meðaltali starfa 3- 4 við að farða fyrir hverja sýningu. Á deildinni er mikið búið til af hárkollum og skeggjum - og allt handgert! Að búa til hárkollu er vandasamt þolinmæðisverk. Það tekur 8 til 10 daga að búa til eina hárkollu. Notuð er afar fíngerð nál, sérstök hárkollunál, og hvert hár fyrir sig hnýtt við örfínt net. Ekta mannshár er notað í hárkollurnar og það er ýmist keypt frá Evrópu eða Asíu. Kíló af 40 sm löngu, evrópsku hári kostar yfir 100.000 krónur! Sami leikari þarf oft að nota fleiri en eina hárkollu í sýningu. Til dæmis notar Brynhildur Guðjónsdóttir fimm hárkollur í Edith Piaf en þar leikur hún söngkonuna smávöxnu frá vöggu til grafar.
Margs er að gæta þegar kemur að förðun leikaranna. Hvers konar karakter á að leika, í hvers konar leikriti og hvernig eru ljósin? Fyrir utan það að gera leikarana sýnilega og undirstrika persónur þeirra verður starfsfólk deildarinnar að geta gert sár og skrámur og ör svo sannfærandi sé, oft eru líka gervitennur notaðar til að gerbreyta útliti leikaranna. Þá er kallaður til sérlegur tannsmiður til samstarfs.
Eftir fyrsta samlestur er fundur með leikstjóra og búningahönnuði þar sem lagðar eru línur að útliti sýningarinnar. Í framhaldi af því hefst vinnan við að útbúa gervin sem þarf. Tveimur vikum fyrir frumsýningu er svo hafist handa við að prófa hárkollur og förðun. Í ljósunum á sviðinu eru gervin svo þróuð í endanlegt horf fyrir frumsýningu.
Árdís Bjarnþórsdóttir er forstöðumaður hárskollu og förðunardeildar.
Að auki eru þrír fastráðnir starfsmenn: Kristín Thors Ingibjörg Huldarsdóttir Kolbrún Birna Halldórsdóttir
Lausráðnir starfsmenn eru: Margrét Benediktsdóttir Soffía M. Hafþórsdóttir Elsa Þórisdóttir Laufey B. Sigurðardóttir
 Hárkollurnar fimm sem Brynhildur Guðjónsdóttir notar í Edith Piaf!
Hárgreiðsludeild
Í hárkollu- og förðunardeild eru hárkollurnar búnar til en svo tekur hárgreiðsludeildin við þeim og sér um að halda þeim við og greiða eftir hverja sýningu. Ef við segjum að sjö sýningar séu í gangi á sviðunum þremur þá gefur auga leið að kollurnar sem eru í notkun og þarf að greiða til fyrir hverja sýningu geta orðið ansi margar. Í sýningunni Þetta er allt að koma voru til dæmis notaðar 37 kollur!
Guðrún Erla Sigurbjarnadóttir er forstöðukona hárgreiðsludeildarinnar og jafnframt eini fastráðni starfsmaðurinn. Hún hefur yfirumsjón með öllum leiksýningunum og fylgir þeim eftir. Hún byrjar undirbúninginn strax eftir fyrsta samlestur. Tveimur vikum fyrir frumsýningu koma lausráðnu hárgreiðslukonurnar, sem vinna við kvöld og helgarsýningarnar, inn í myndina. Þær eru sjö talsins hjá Þjóðleikhúsinu. Hárgreiðslukonurnar mæta tveimur tímum fyrir sýningar og starfa á meðan þær standa yfir. Þær sjá um að greiða leikurunum og festa hárkollur og skegg.
Þegar tjaldið er dregið frá og sýningin hefst mætti ætla að allt væri klappað og klárt og starfsmenn hinna ólíku deilda gætu sest með tærnar upp í loft en því er alls ekki þannig varið. Hárgreiðslan er enn í fullum gangi því leikarar koma inn í sýninguna á mismunandi tímum og stundum ekki fyrr en eftir hlé. Það þarf hröð handtök þegar leikari þarf að skipta um hárkollu á leifturhraða, starfsmaður hárgreiðsludeildar bíður þá tilbúinn útí væng og þá gildir að vera búin að æfa sig og vera ekki með 10 þumalputta.
Hér er verið að vefa "trensur" sem svo eru notaðar í hárkollur.
|