Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Kíktu baksviðs > Störfin á bakvið tjöldin > Búningahönnuður
Búningahönnuður

 

 

Búningahönnuður er ráðinn sérstaklega að hverju verki. Hann/hún hefur umsjón með öllum búningum leiksýningar. Í þeim verkum sem færri búningar eru, hefur leikmyndahöfundur oft umsjón með búningunum.

 

Búningahönnuður þarf að eiga samvinnu við mjög marga í sínu starfi. Hann/hún vinnur í fyrsta lagi náið með leikstjóra sýningar og leikmyndahöfundi að heildar-hugmynd eða konsepti búninganna. Eiga búningarnir til dæmis að vera frá ákveðnum tíma, eða tímalausir? Á að vera samræmt heildarútlit á búningunum? (T.d. í sömu litum eða í sama stíl.) Fatnaðurinn sem við klæðumst gefur miklar upplýsingar um persónuleika okkar. Þess vegna skiptir það mjög miklu máli að persónur í leikverki séu klæddar samkvæmt þeim hugmyndum sem leikstjóri, hönnuðir og leikarar eru að vinna útfrá.

 

Þá þarf að gæta samræmis milli búninga og leikmyndar, því hvort tveggja skapar þá útlitslegu umgjörð sem verkið gerist í, og þann ramma sem aðrir listamenn sýningarinnar hafa til að vinna útfrá.

 

Búningahönnuður byrjar á því að lesa leikritið, kynna sér tímann sem það á að gerast á og skoða persónurnar hverja fyrir sig. Oft rissar hann/hún upp hugmyndir á meðan á þessari forvinnu stendur, blaðar í gegnum bækur og blöð og reynir að gera sér hugmynd um hvernig persónurnar gætu litið út.  Þegar listrænir aðstandendur hafa sæst á teikningar búningahönnuðar, tekur saumastofan til starfa undir handleiðslu hönnuðarins. Ósjaldan þarf að sauma megnið af búningunum frá grunni. En Þjóðleikhúsið á líka stórt búningasafn sem nýtist búningahönnuðum vel. Mjög oft eru eldri flíkur til dæmis notaðar sem grunnur að nýjum búningum og saumaðar til eftir þörfum.

 

Leikarinn sjálfur getur haft töluvert að segja varðandi búninginn sinn, og oft eru gerðar fleiri en ein tilraun með búning áður en niðurstaða fæst sem allir eru sáttir við. Búningahönnuðurinn á auk þess í stöðugu samtali við leikmyndahönnuð, leikstjóra og svo á seinni stigum hár- og förðunardeild og jafnvel ljósahönnuð um útlit persónanna.

 

Á myndinni er Þórunn E. Sveinsdóttir búningahönnuður að vinna að búning fyrir Jón Odd og Jón Bjarna í Þjóðleikhúsinu árið 2002.

 

Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is

 



Hefur þú komið á þessa síðu áður?

Já, mjög oft.
Já, nokkuð oft.
Já, nokkrum sinnum.
Já, örsjaldan
Nei, aldrei.