Ingibjörg Þórisdóttir, aðstoðarmaður leikstjóra í Pabbastrák skrifar:
Fyrsti samlestur, 30. janúar 2003 Það er alltaf gaman að hittast á fyrsta samlestri. Þá koma saman leikarar og listrænir stjórnendur sýningarinnar. Í þessu leikriti eru bara 4 leikarar en á samlestrinum voru um tuttugu manns. Alltaf kemur það manni á óvart hversu margir leggja hönd á plóginn við eina uppfærslu. Ljósmyndarar frá blöðunum tóku myndir af hópnum. Leikritið var lesið í gegn, aðeins rætt um efni þess og persónur og skipst á skoðunum. Það er hugur í fólki og beðið með óþreyju eftir næstu æfingu. Æfing á Ballettsal, 31. janúar 2003 Textavinna. Allir leikarar eru boðaðir, leikstjóri, aðstoðarmaður leikstjóra og leikmyndahönnuður. Farið var í texta að bls. 7. Stefnan er að leggja allan textann á minnið á næstu vikum áður en leikstjórinn leggur verkið. (Lögnin er ákvörðun leikstjórans um hvernig verkið á að vera og líta út.)
Æfing á Ballettsal, 3. febrúar 2003Textavinna fyrir hádegi. Eftir hádegi voru umræður um verkið og málefni því skylt. Æfing á Ballettsal, 4. febrúar 2003Textavinna allan daginn. Gengur vel. Leikarar eru að byrja að læra textann utan að. Verkið er flókið svo að það er ekki auðvelt verk. Æfing á Ballettsal, 5. febrúar 2003Textavinna í 1/3 verksins. Í dag byrjaði leikstjórinn að leggja leikritið. Fram að þessu hafa leikarar gert það sem þeir vilja varðandi stöður og viðhorf til persónanna. Nú fáum við að vita hvað leikstjórinn hefur í huga í þeim efnum. Æfing á Ballettsal, 6. febrúar 2003 Textavinna og umræður Æfing í Jónshúsi. 10. febrúar 2003Við erum ekki búin að sjá módel (líkan sem leikmyndahönnuður leggur fram áður en leikmyndin er smíðuð) af leikmyndinni. Því reyndum við að mæla stærð sviðsins og merkja með stólum. Áfram er haldið með textavinnu, sú vinna er reyndar endalaus. Það er hægt að segja hlutina á svo marga vegu og nú er verið að skoða hvað er í rauninni að gerast í leikritinu. Er það í rauninni alltaf það augljósa, eða býr eitthvað að annað að baki en blasir við? Æfing í Jónshúsi, 11. febrúar 2003Umræður fyrir hádegi um þema verksins. Frekar dapurlegar, enda var aðalumræðuefnið dauðinn. Eftir hádegi var kýlt á textavinnu. Það er hugur í leikurum. Við kíktum niður á Litla svið þar sem leikritið verður sýnt til að fá nasasjón af rýminu. Æfing í Jónshúsi, 12. febrúar 2003Í dag kom upp vottur af óöryggi há leikurum enda er leikritið óhefðbundið og hægt að leysa aðstæður á marga vegu. Leikstjórinn eyddi öllum vafaatriðum og áfram var haldið. Eftir hádegi kom leikskáldið og fylgdist með æfingu. Hann kom með innlegg í umræðuna og mjög nytsamlegt að hafa hann á staðnum. Hann lætur þó leikstjórann um ákvarðanir. Það var náð ansi langt í dag með að leggja verkið eða setja gróflega í stöður. (ca frá bls. 6 til bls. 30). Æfing í Jónshúsi, 13. febrúar 2003Fyrstu blaðsiðurnar voru lagðar og svo var farið aftur yfir það sem við gerðum í gær. Æfing í Jónshúsi, 14. febrúar 2003Unnum tveggja manna senu fyrir hádegi. Ansi magnað atriði. Þetta tekur á tilfinningarnar. Hættum snemma í dag. Æfing í Jónshúsi, 18. febrúar 2003Það voru veikindi í gær svo að við unnum vel í dag til að vinna upp tímann. Við unnum með seinni hluta leikritsins. Við höfum verið að vinna fyrri hlutann fram að þessu en nú er komið að því að lesa út að enda. Við fengum heimsókn frá hárgreiðslunemum úr Iðnskóla Hafnarfjarðar. Þau sátu gegnum lesturinn og okkur til mikillar ánægju þá fengum við feedback eða urðum þess vör að þau sýndu þessu áhuga og skildu um hvað verið var að fjalla. Verkið gerist í mismunandi tíma og rúmi og er kannski ekki auðskilið. Þessi heimsókn gerði okkur staðföst í þeirri trú að við værum á réttri leið. Æfing í Jónshúsi, 19. febrúar 2003Við byrjuðum af þó nokkrum krafti og unnum vel í dag. Aftur fengum við heimsókn en í þetta sinn frá nemendum Kvennaskólans. Þau áttu bara að vera með okkur í rúman hálftíma fyrir hádegi en nokkur fylgdu okkur út daginn. Gaman að fá áhugasamt fólk með okkur. Við settum okkur markmið að fara í gegnum allt leikritið á föstudaginn svo að morgundagurinn verður notaður fyrir litlar senur. Vonandi stenst þessi áætlun. Æfing í Jónshúsi, 20. febrúar 2003Í dag fórum við í margar strákasenur, heilar 10 senur , næstum helminginn af leikritinu. Dagurinn nýttist mjög vel. Æfing í Jónshúsi, 21. febrúar 2003Allir mættir. Morguninn fór í mjög heitar leikhúsumræður. Hvað er gildi leikhússins? Hvað viljum við segja? Hvert er markmiðið? osfrv. Svona umræður eru oft þarfar og hleypa lífi í mannskapinn. Eftir hádegi byrjuðum við á blaðsíðu eitt og renndum í gegnum verkið. Einhver óvissa er um frumsýningardag svo að ákveðið er að vinna mjög vel í næstu viku til að hafa verkið rennslishæft í lok hennar. Æfing í Jónshúsi 25. febrúar 2003Fyrir hádegi fórum við í tvær senur sem eru mjög langar og mæðir mikið á leikurunum í þeim. Verkið er svo persónulegt og umfjöllunarefnið er oft yfirþyrmandi, a.m.k. í vinnuferlinu. Æfing í Jónshúsi, 26. febrúar 2003Síðustu 25 blaðsíðurnar voru teknar fyrir og unnar af kappi allan daginn. Æfing í Jónshúsi, 27. febrúar 2003Fórum í seinni hlutann fyrir hádegi. Renndum frá byrjun eftir hádegi. Líklega verður æfingum hætt um miðja næstu viku og gert hlé þangað frumsýningardagur verður ákveðinn. Æfing á Kristalsal og í Jónshúsi, 3. mars 2003Vegna æfinga á leiklestri á Lýsiströtu eftir Aristofanes þurftum við að láta eftir æfingasalinn í dag og vorum til að byrja með upp á Kristalssal. Seinni partinn fórum við aftur yfir í hús (Jóns Þorsteinssonar þar sem æfingasalurinn er). Enn er óvissa um frumsýningardag svo að erfitt er að segja um framhaldið. Æfing í Jónshúsi, 4. mars 2003Kvöldæfing. Við byrjuðum klukkan 18. Fórum yfir seinni hlutann. Leikararnir voru mjög afslappaðir og þetta gekk mjög vel. Klukkan 20 komu tæplega 30 konur (1 karlmaður) til að horfa á æfingu. Í fyrsta skipti renndum við leikritinu frá A-Ö. Þetta var mjög ögrandi fyrir leikarana að renna svona í fyrsta skipti fyrir framan áhorfendur. Þetta gekk vel þrátt fyrir textaklikk sem er eðlilegt. Enn er langt í land. Eftir rennsli voru umræður og við vorum rosalega ánægð með hvað áhorfendur voru með á nótunum. Þau komu með spurningar sem við sjálf höfum verið að spyrja okkur og gaman var að fá annarra sýn á verkið. Við erum á réttri leið. Æfing í Jónshúsi, 5. mars 2003Mættum á hádegi. Fórum aðeins yfir gærdaginn. Skoðuðum aðeins hvar áherslurnar eru og hverju þarf að breyta. Tónlistarmaðurinn okkar kom og fylgdist með í smátíma. Æfing í Jónshúsi, 6. mars 2003Nú er búið að taka ákvörðun um að við frumsýnum í vor en það er ekki víst á hvaða sviði það verður. Nú tekur við 2 vikna æfingafrí og við stefnum á að byrja aftur fersk og hress í lok mars. Í dag fórum við yfir textavitleysur sem þarf að leiðrétta og hreinsa upp. ÆFINGAHLÉ Æfing í Jónshúsi, 28. apríl 2003Æfingafríið varð lengra en til stóð í byrjun. Reyndar vinnum við nú í 3 daga svo er frí til 12. maí vegna utanlandsferðar á leiklistarhátíð í Berlín. Í dag vantar auk þess aðalleikkonuna. Ég þurfti að lesa inn fyrir hana. Það olli nokkrum óþægindum en veikindi verður ekki við ráðið. Æfing í Jónshúsi, 29. apríl 2003Enn vantar leikkonuna. Við unnum stutt í dag og ætlum ekki að vera með æfingu á morgun en byrjum að krafti þegar við komum tilbaka. ÆFINGAHLÉ Æfing á Litla sviði, 12. maí 2003Jæja, allir mættir endurnærðir og frískir. Við fórum yfir allt leikritið. Leikmyndin er komin upp en lýsing, hljóðmynd og leikmunir eiga eftir að fylla upp í rýmið og fullkomna verkið. Tæknimenn eru mættir til leiks. Ég bjó til æfingaplan fyrir vikuna og dreifði því um húsið til skipulagsstjóra, umsjónarmanns Litla sviðsins , skrifstofu og húsvarðar. Æfing á Litla sviði, 13. maí 2003Byrjuðum á að syngja afmælissönginn fyrir leikstjórann. Annars er það helst að frétta að við fengum meiri tónlist frá tónlistarmanninum okkar. Það er endurbætt útgáfa frá þeirri sem við höfðum auk þess sem hann kom með fleiri stef. Æfingin gekk vel. Við unnum fyrstu 20 blaðsíðurnar og ætlum að reyna að halda því tempói út vikuna. Við kíktum einnig á búninga. Í þessu tiltekna leikriti eru búningarnir mjög raunsæir, svo að leikstjórinn og leikmynda- og búningahönnuðurinn þurfa að taka ákvörðun um hvernig þeir líta út. Þeir fá ómetanlega hjálp frá deildarstjóra saumastofunnar í þeim efnum. Æfing á Litla sviði, 14. maí 2003Við byrjuðum á blaðsíðu 18 í dag og unnum rúmar 20 síður. Það gengur mjög vel og leikararnir standa sig frábærlega. Við erum svo heppin að vera með topp leikara í þessari sýningu. Sýningin er mjög krefjandi og ég er ekki viss um allir gætu unnið svona vel með tilfinningaskalann sem þessir leikarar þurfa að sýna. Eftir hádegi fengum við tvær stelpur í starfskynningu. Þær fylgdust með æfingu í rúman klukkutíma og þegar þær kvöddu voru þær yfir sig hrifnar. En eitt af þeim verkefnum sem ég þarf að sinna er að vera milliliður leikstjórans og leikhússins ef gestir koma á æfingar. Leikstjórinn þarf að fá næði til að vinna sína vinnu en ég er s.s. til aðstoðar og passa að öll smáatriði sem ekki koma sýningunni beint við, fari fyrst í gegnum mig. Svo tala ég við leikstjórann um málið ef þörf krefur. Æfing, Litla sviðið, 15. maí 2003Í dag fékk ég að vera í fríi því að það var námskeið í boði á vegum leikhússins sem var um leikaðferðir commedia dell'arte og Bertolds Brecht. Mér skilst að æfingin hafi gengið mjög vel og að hljóðmaðurinn okkar hafi verið að hvísla í staðinn fyrir mig. Annars eru leikararnir með textann næstum alveg á hreinu. Leikritið er bara svo flókið í uppbyggingu að það er erfitt að muna hvaða atriði kemur næst. Æfing á Litla sviði, 16. maí 2003Það er föstudagur í fólki. Þá á ég við að það er alltaf meiri grallaraskapur í fólkinu á föstudögum. Reyndar var einhver taugatitringur í einum leikaranum en það leið hjá. Svo var bara gaman eins og oftast. Það var þó eitt leiðindamál sem tók sinn toll af þessum degi en einn leikari hússins varð fyrir ástvinamissi. Þetta tók á okkur öll og var hugur okkar hjá fjölskyldu þessa samstarfsmanns okkar. Enn eigum við eftir að ákveða hvenær opin æfing verður í lok þessa æfingatímabils. En við erum í óvenjulegri aðstöðu varðandi æfingatíma. Við munum hefja aftur æfingar í haust en aðeins í vikutíma eða svo, og svo er frumsýnt. En þegar á allt er litið var þetta góð vika. Æfing á Litla sviði, 19. maí 2003Kvöldæfing. Margt gott gerðist á þessari æfingu. Smáatriði í leikmynd eru komin að mestu leyti á sinn stað. Búningarnir eru líka að mestu leyti komnir. Leikararnir kunna textann sinn en það er svo skrítið að það er eins og klikkið sé alltaf á sama stað. Ég er alltaf að leiðrétta sömu villurnar. Þetta eru meinlokur og alls ekki óalgengt hjá leikurum. Æfing á Litla sviði, 20. maí 2003Venjuleg æfing. Gekk vel. Lítið markvert gerðist í dag. Ólafur Haukur sviðsstjóri Litla sviðsins er eins og hugur manns. Hann er bókstaflega til í að gera allt fyrir okkur. Alveg ómissandi. Æfing á Litla sviði, 21. maí 2003Kvöldæfing með örfáum áhorfendum, þ.á.m. voru Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri, Grímur Bjarnason ljósmyndari, Hávar Sigurjónsson, höfundur verksins og Björg Björnsdóttir kynningarstjóri. Rennslið gekk fremur illa. Þetta varð einhvern veginn svo flatt. En svona rennsli verða að gerast því að þá vitum við hvað ber að varast í næsta skipti. Þeim sem horfðu fannst gaman enda eru blæbrigðin, sem við sem fylgjumst með daglega, ekki sýnileg þeim sem sjá þetta í fyrsta skipti. Eftir æfingu voru nótur (athugasemdir og ábendingar) frá leikstjóra. Æfing á Litla sviði, 22. maí 2003Rennslið í dag gekk mjög vel. Allt annað en í gær. Allir eru ánægðir. Æfing á Litla sviði 23. maí 2003Í dag var ljósmyndarennsli og nokkrir starfsmenn hússins komu til að horfa. Það gekk reyndar mjög vel en þetta var mjög hægt og stundum máttlaust. Það er föstudagur og fólk er þreytt eftir vikuna. Samt voru allar tilfinningar á réttum stað og fullt að gerast í verkinu en þagnir óþarflega langar og vantaði s.s. smá orku. Áhorfendum fannst gaman og ég hitti eina frá saumastofunni síðar um daginn og hún var enn að hugsa um leikritið og velta því fyrir sér. Það segir manni að það er allt á réttri leið. Æfing á Litla sviði, 24. maí 2003Jæja, þá er júróvisjon dagur í dag. Við vonum að Birgitta standi sem með prýði. En í dag var lokaæfingin á þessu æfingatímabili. Við byrjum aftur í haust rétt áður en við frumsýnum. Í dag vorum við með fullt hús af gestum. Mér sýndist allir skemmta sér vel og leikritið hefur djúp áhrif á fólk. Þetta gekk svo sem mjög vel. Svo kvöddumst við og það er alltaf svolítið skrítið að kveðja samstarfsfólk sitt eftir nána og persónulega vinnu eins og leiklistin ein (held ég) getur boðið uppá. Dálítill tregi en allir héldu í sumarfríið með bros á vor og gleði í hjarta... 
Æfing á Litla sviði, 11. september 2003Þá byrjum við aftur eftir dágott hlé. Þetta verður bara viku törn að frumsýningu sem er dálítið knappt en maður treystir því að maður sé að vinna með atvinnufólki sem lætur fagmennsku liggja í fyrirrúmi. Nú, í dag hittumst við eftir hádegi á Leikhúsloftinu sem er lítill salur efst í Þjóðleikhúsbyggingunni. Þar voru tæknimenn búnir að setja upp sjónvarp og myndbandstæki svo að við gætum horft á töku af leikritinu frá því í vor til þess að rifja upp. Það var gaman að sjá þetta aftur því að maður fann að leikritið er ansi gott og ég fékk smá hita í magan og sagði við sjálfa mig: ,,...dj...er þetta gott leikrit." Æfing á Litla sviði, 12. september 2003Við hittumst niðri á Litla sviði þar sem leikmyndin hefur beðið eftir okkur í allt sumar. Leikararnir voru bara nokkuð vel á sig komnir textalega og höfðu sama sem engu gleymt. Við renndum einu sinni yfir verkið með allri tækni og vorum bara nokkuð ánægð á eftir. Auðvitað er alltaf eitthvað smá sem þarf að laga en ekkert sem heitið getur. Það er dálítil tilhlökkun í loftinu. Æfing á Litla sviði, 15. september 2003 Æfing byrjaði kl. 10 eins og flestar æfingar. Aftur var rennt yfir verkið. Eftir hádegi fengum við heimsókn frá nemendum. Hún Dóra Hafsteins í kynningardeildinni er dugleg að senda til okkar nemendur frá hinum og þessum skólum. Allir svona hlutir þurfa að fara til mín og ég tala svo við leikstjórann, fæ samþykki hans og leikhópsins. Stundum er ekki hægt að hleypa ókunnugum inn í salinn því að vinnan getur stundum verið svo viðkvæm. Ég held hins vegar að við höfum ekki þurft að vísa neinum frá, kannski í mesta lagi að breyta tímasetningu. Æfing á Litla sviði, 16. september, 2003Kvöldrennsli. Leikarar mæta upp úr kl. 18 - 18.30. Í þessari sýningu er ekki mikið smink svo að leikararnir þurfa ekki mikinn tíma til undirbúnings. Þau þurfa samt að koma sér í gírinn, losa sig við amstur dagsins og einbeita sér að hlutverkunum. Nú er mínu starfi að ljúka sem aðstoðarmaður leikstjóra. Ég þarf bæði að taka niður nótur (athugasemdir til leikara og tæknifólks) hjá leikstjóranum en svo fylgir því líka á Litla sviðinu að aðstoðarleikstjórar eru líka hvíslarar. Ég þarf því að sitja með handritið og punkta niður hjá mér allar smávægilegar breytingar og þau atriði sem ekki eru textalega hrein. Þetta getur verið strembið en hefst samt. Við fengum nokkra áhorfendur í kvöld. Æfing á Litla sviði, 17. september 2003Í dag var stillt upp fyrir sjónvarp. En í kvöld var ljósmyndarennsli á undan sjálfu rennslinu og þó nokkrir áhorfendur. Það er kannski rétt að geta þess að rennsli þýðir æfing sem er eins og sýning. Þ.e.a.s. ekkert stopp og allir á sínum stað eins og um sýningu væri að ræða. Nú, Þetta gekk ekki eins vel og í gær. Það er eins og óskráð regla að önnur æfing fyrir frumsýningu sé erfið og stundum léleg svo að maður kippir sér ekkert upp við þetta. Þau voru samt góð en rennslin hafa verið betri hjá okkur. Lokaæfing (generalprufa), 18. september 2003Jæja þá fer að koma að því. Frumsýning á morgun. Það er lítill kvíði í fólki því að þetta hefur gengið vel. Reyndar fékk ég ákúrur fyrir að hafa ekki sagt leikurum að æfingin byrjaði klukkan 20. 30 en ekki kl. 20.00. Reyndar stóð þetta á æfingaplaninu sem ég hengdi upp fyrir löngu svo að ég hef ekki slæma samvisku yfir þessu. En auðvitað hefði ég mátt minna þau á þetta. Kvöldið í kvöld var fínt. Allt á sínum stað og ég þurfti ekkert að hvísla. Enda eiga hvíslarar í lengstu lög að reyna að sleppa því að hvísla. Ég tók niður nokkrar nótur fyrir leikstjórann og textanótur líka. Svo krossleggur maður fingur og vonar að allt gangi vel á morgun. FRUMSÝNING, 19. september 2003Allir mættu í sparifötunum og glaðir í sinni. Það er alltaf mikil stemmning á frumsýningardaginn. Reyndar eru áhorfendur alltaf dálítið hátíðlegir svo að salurinn getur virst þungur. En allt gekk vel og allir eru glaðir og kátir. Nú er ég búin með mína vinnu sem aðstoðarmaður leikstjóra. Nú hvísla ég næstu sýningar en þau þurfa ekkert á mér að halda sem betur fer. Þetta hefur verið mjög gaman, lærdómsríkt og gefandi. Maður er alltaf svolítið tómur eftir frumsýningu en í þessu tilfelli er tómleikatilfinningin ekki svo sterk því að við skildum eiginlega við verkið í vor. Þetta var eins og upprifjun. Það er tilhlökkunarefni að takast á við næsta verkefni, hvað sem það nú verður því að aðstoðarmenn leikstjóra eru ekki með fast starf, svo að framtíðin er alltaf óljós. En það er það sem gerir leikhúsið svo spennandi maður veit aldrei hvað gerist næst....
|