Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Kíktu baksviðs > Störfin á bakvið tjöldin > Aðstoðarmaður leikstjóra
Aðstoðarmaður leikstjóra

Eins og starfstitillinn ber með sér, er starf aðstoðarmanns leikstjóra fyrst og fremst að aðstoða leikstjórann. Mismunandi er hvernig leikstjórar nýta sér aðstoðarmenn sína, og einnig er mismunandi eftir verkefnum og leiksviðum hvaða hlutverki aðstoðarmaður gegnir.

 

Aðstoðarmaður leikstjóra er þó oftast í því hlutverki að sitja æfingar með leikstjóranum og vera honum innan handar með allt sem kann að koma upp á á æfingum. Hann/hún sér til þess að leikstjóri fái næði til að vinna, tekur við skilaboðum og kemur skilaboðum áleiðis bæði til leikhópsins og til tæknideildanna.

 

Sumir leikstjórar nýta sér aðstoðarmenn sína til ráðgjafar, enda eru aðstoðarmennirnir (eða aðstoðar-konur) oft ungir leikstjórar eða leikarar sem hafa áhuga á leikstjórn.

 

Sumir leikstjórar taka mikið af nótum á æfingum, sem eru athugasemdir til leikara. Oft sjá aðstoðarmenn um að skrá athugasemdirnar niður, sérstaklega þegar komið er að því að renna verkinu; þ.e. að fara yfir verkið í heild sinni án þess að stoppa.

 

Aðstoðarmaður heldur oft utanum leikmunalista og sér stundum nánast alfarið um dagleg samskipti við leikmunadeild. Þá skráir aðstoðarmaður oft niður sviðshreyfingar, þegar vinnan er á því stigi að verið er að leggja verkið eða setja í stöður.

 

Æfingaboð er á ábyrgð aðstoðarmanns, sem sér um að setja upp æfingaplan fyrir vikuna og koma eintaki af því til allra sem málið varðar. Á seinni stigum æfingaferlis geta það verið ansi margir aðilar.

 

Á Litla sviði og á Smíðaverkstæðinu er aðstoðarmaður leikstjóra einnig í hlutverki hvíslara, og heldur því áfram á sýningum ef þörf krefur.

 

Aðstoðarleikstjóri

Í stærri uppsetningar eins og söngleiki og í sýningar þar sem leikstjóri þarf túlk, er ráðinn aðstoðarleikstjóri. Í söngleik er aðstoðarleikstjóri t.d. oft dansari, og hefur þá ábyrgð að gegna hvað varðar dansa í sýningunni. Aðstoðarleikstjóri hjá erlendum leikstjórum gegnir mjög mikiklvægu hlutverki í upplýsingamiðlun milli leikhússins, deildanna og leikstjórans.

Lestu dagbók aðstoðarmanns leikstjóra í Pabbastrák!