|
Þjóðleikhúsið á sennilega stærsta búningasafn landsins. Safnið er af þeirri stærðargráðu að það rúmast alls ekki í sjálfri leikhúsbyggingunni, og því er það varðveitt í stóru geymsluhúsnæði í Sundagörðum. Þrátt fyrir þetta, eru búningar oftar en ekki saumaðir sérstaklega fyrir sýningar. Kröfur hönnuða eru oft þannig að ákveðinn heildarsvipur og stíll á búningunum er skilyrði, og þá er oftast einfaldast að sauma búningana frá grunni. Jafnvel þegar búningar eru notaðir úr geymslunni er oft mikil vinna hjá saumastofunni við að lagfæra og breyta gömlu búningunum eftir fyrirmælum búningahönnuðar.
Hluti safnsins er aflokaður og gengur hjá starfsfólki saumastofunnar undir nafninu Gersemasafnið. Það eru geymir búningar sem hafa sögulegt gildi fyrir leikhúsið.
Búningar Þjóðleikhússins eru ekki til útleigu né láns.

Þátttakendur í dagskrá tengdri verkefninu Dæturnar með í vinnuna vorið 2002 nutu sín svo sannarlega í stóru búningageymslu Þjóðleikhússins. Stelpurnar (reyndar var einn drengur með í för líka!) fengu að fara um allt og máta hvað sem þær vildu í geymslunum. Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér, var af nógu að taka... 

|