Fréttir

Þjóðleikhúsið þá og nú

Leiklist í skólum

Kíktu baksviðs

Leikarinn heitir...

Veftré

Tenglasafn

Um fræðsludeildina

Gagn og gaman

Umræða um leiklist

Forvitnilegar staðreyndir!

Leiksýningar

Um þessa síðu
Forsíða > Fréttir > Fréttin öll
Fréttin öll
15. mars 2010

FORUM vinnusmiðja



Viltu kynnast aðferðum Forum leikhússins?  FLÍSS, í samstarfi við Fræðsludeild Þjóðleikhússins, boðar  til vinnusmiðju  um aðferðir Forum leikhússins, þriðjudagskvöldið 16. mars nk. kl. 20.00. Smiðjuna leiðir Ólafur Guðmundsson leiklistarkennari. Forum leikhús er leiklistaraðferð þróuð af Brasilíumanninum Augusto Boal á 7. og 8. áratug síðustu aldar. Hún er hluti af því sem Boal kallar „Leikhús hinna kúguðu“ (Theatre of the Oppressed) og hefur það markmið að stuðla að umræðu og meðvitund hins almenna borgara um stöðu sína og möguleika í þjóðfélaginu. Í stað þess að sitja aðgerðarlausir í áhorfendasalnum og horfa á leiksýningu eru áhorfendur settir í þá stöðu að geta haft áhrif á framvindu verksins með því að koma upp á svið, eða út á gólf, allt eftir því hvar sýnt er, og koma með tillögur að því hvernig valdar persónur í leikritinu gætu breytt á annan og betri hátt en þær gera. Þannig skapast grundvöllur fyrir umræðu og nám.

Vinnusmiðjan hefst kl. 20 og er til 22. Verð: Aðeins 3000 krónur.

Við hvetjum áhugasama að skrá sig á netfangið: fliss@fliss.is

Fylgstu með!

 Skráðu þig á póstlista fræðsludeildarinnar

fraedsla@leikhusid.is

 



Hefur þú komið á þessa síðu áður?

Já, mjög oft.
Já, nokkuð oft.
Já, nokkrum sinnum.
Já, örsjaldan
Nei, aldrei.